Viðskipti erlent

Samkomulag um neyðarlánið til Kýpur náðist í nótt

Samkomulag náðist í nótt eftir 12 tíma langa samningalotu um 10 milljarða evra neyðarlán til Kýpur frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

Samkomulagið felur m.a. í sér að Laiki banka, næststærsta banka eyjunnar, verður lokað og almennar innistæður upp að 100.000 evrum verða settar inn í Kýpurbanka, stærsta banka eyjarinnar. Sá banki verður svo endurskipulagður í framhaldinu og verulega dregið úr stærð hans.

Aðrir bankar á Kýpur verða ekki fyrir barðinu á þessum aðgerðum. Hinsvegar má nefna að fyrrgreindir tveir bankar voru samanlagt meir en helmingur af bankakerfi eyjarinnar.

Þær innistæður sem eftir standa í Laiki banka verða frystar og síðan þjóðnýttar að stórum hluta eða allt að 40%. Ekki er búið að ákveða hve stór skattur verður settur á innistæður umfram 100.000 evrur í Kýpur bankanum.

Reiknað er með að þessar bankaaðgerðir skapi stjórnvöldum á Kýpur tekjur upp á rúmlega 4 milljarða evra. Ljóst er að eigendur og kröfuhafar í Laiki banka munu tapa nær öllu sínu.

Þeir innistæðueigendur sem voru með yfir 100.000 evrum á reikningum sínum í Laiki bankanum verða sennilega að bíða í einhver ár þar til þeir fá það sem eftir stendur í hendurnar að nýju. Hér er um Rússa að ræða að stórum hluta og er beðið eftir opinberum viðbrögðum rússneskra stjórnvalda við samkomulaginu.

Fram hefur komið í morgun að samkomulagið þarf ekki að bera að nýju undir þingið á Kýpur því það samþykkti í síðustu viku endurskipulagningu á bankakerfi eyjunnar.

Sérfræðingar eru sammála um að mjög erfiðir tímar séu framundan hjá íbúum Kýpur. Þannig segir Jacob Graven aðalhagfræðingur Sydbank í Danmörku að þótt samkomulagið leysi ákveðinn vanda til skamms tíma megi búast við að íbúar Kýpur glími við djúpa kreppu á næstu árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×