Viðskipti erlent

Lego í samningum við framleiðendur Simpsons þáttanna

Danski leikfangarisinn Lego á í samningum við framleiðendur hinna vinsælu sjónvarpsþátta um Simpsons fjölskylduna.

Ef samningar takast mun Lego geta notað persónurnar í fjölskyldunni, Homer, Marge, Bart, Lisu og Maggie í vörum sínum.

Mads Nipper markaðstjóri Lego staðfestir að samningar standi yfir í samtali við Ekstra Bladet en hann segist ekki vita hvenær þeim lýkur.

Lego hefur áður náð góðum árangri með því að semja um afnot af þekktum kvikmyndapersónum. Má þar nefna Harry Potter, Star Wars og Indiana Jones.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×