Viðskipti erlent

Netheimar harmi slegnir

MYND/AP
Netheimar eru harmi slegnir yfir andláti hins 26 ára gamla Aaron Swartz en hann svipti sig lífi í íbúð sinni í New York á föstudaginn.

Swartz var afar litrík persóna. Hann var aðeins 14 ára gamall þegar hann forritaði fyrstu útgáfurnar af RSS-kóðanum en með honum er hægt að dreifa efni og gögnum einnar vefsíðu á margar. Swartz kom einnig að þróun vefsíðunnar Reddit sem margir þekkja.

Á síðustu árum barðist Swartz fyrir frelsi á veraldarvefnum og var einn af stofnendum Demand Progress þrýstihópsins. Þar barðist hann gegn ritskoðun á internetinu.

Fyrir nokkru var Swartz ákærður fyrir gagnastuld. Grunur lék á að hann hefði brotist inn í gagnabanka JSTOR upplýsingaveitunnar og rænt þaðan milljónum fræðigreina. Swartz neitaði sök en réttarhöld yfir honum áttu að hefjast í næsta mánuði. Hann átti margra ára fangelsisvist yfir höfði sér.

Lögmaður Swartz staðfesti fráfall við fréttablað MIT, The Tech, í gær. Þá er einnig haft eftir réttarlækni að Swartz hafi hengt sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×