Viðskipti erlent

Sölumet hjá Volkswagen á síðasta ári

Þýski bílaframleiðandinn Volkswagen setti sölumet á síðasta ári, seldi rétt rúmlega 9 milljónir bíla. Þetta er mesta salan á einu áru í 75 ára sögu Volkswagen.

Það er einkum mikil söluaukning í Bandaríkjunum sem skýrir metið en þar jókst salan um 35% miðað við fyrra ár.

Salan jókst einnig í töluvert í Kína og í Suður Ameríku. Hinsvegar stóð salan í stað í Evrópu miðað við fyrra ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×