Viðskipti erlent

Nú getur þú leitað á Facebook - Sigur Rós hljómar undir kynningarmyndbandinu

Samskiptamiðillinn Facebook kynnti í dag leitarvél á síðunni sem verður tekin í notkun á næstunni. Hingað til hefur ekki verið mögulegt að leita í efni síðunnar. Í leitarvélinni geta notendur leitað á Facebook, til dæmis einhverju efni sem vinir hafa líkað við eða deilt.

Leitarvélin ber yfirskriftina "Graph Search" og var það sjálfur Mark Zuckerberg, stofnandi samskiptarisans, sem kynnti leitarvélina í dag.

Hann sagði að tilgangur leitarvélarinnar væri sá að auðvelda notendum að finna upplýsingar á samskiptamiðlinum - sem koma ekki upp í leitarvélum á borð við Google og Yahoo.

Í kynningarmyndbandi sem birt var síðdegis í dag er farið yfir eiginleikana og er það að sjálfsögðu lag með íslensku hljómsveitinni Sigur Rós sem hljómar undir.

Íslendingar virðast vera vinsælir hjá stóru tæknirisunum úti, því lag með íslensku hljómsveitinni Of Monsters and Men hljómaði undir þegar Apple kynnti iPhone 5 símann í haust.

Hægt er að kynna sér leitarvélina nánar hér.

Í myndbandinu hér fyrir neðan útskýra síðan Mark Zuckerberg og félagar hans virkni leitarvélarinnar og þær áskoranir sem felast í því að útbúa slíka vél fyrir gríðarstóra gagnagrunna Facebook.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×