Viðskipti erlent

Fær mun meira með svartri vinnu en nemur atvinnuleysisbótunum

Ekstra Bladet í Danmörku er komið í enn eina herferð sína gegn spillingu. Að þessu sinni beinir blaðið sjónum sínum að þeim mönnum sem vinna svart en þiggja atvinnuleysisbætur á meðan.

Umfjöllun blaðsins hófst í vikunni á því að greina frá trésmiðnum Peter sem er á fullum atvinnuleysisbótum en hefur meiri tekjur en bæturnar með því að vinna svart.

Peter lauk sveinsprófi í trésmíði fyrir rúmlega tveimur árum síðan. Eftir það vann hann í hálft annað ár hjá fyrirtækinu sem hann tók sveinsprófið hjá. Honum var síðan sagt upp vegna verkefnaskorts og fór á bætur.

Peter segir að fljótlega hafi hann fengið mörg tilboð um svarta vinnu. Hann vinni nú svart 37 tíma á viku og fær fyrir það 26 þúsund danskar krónur á mánuði eða nærri 600.000 krónur sem er töluvert hærri upphæð en bæturnar.

Hinsvegar fara atvinnuleysisbæturnar hans inn á bankareikninginn hvern mánuð og af þeim borgar hann helstu nauðsynjar í daglegu lífi sínu. Svörtu tekjurnar notar hann til að leika sér með, það er borga hluti eins og utanlandsferðir eða nýjan flatskjá. Og raunar líka til að safna í sarpinn fyrir mögru árin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×