Fótbolti

Fáir þoldu Zlatan þegar hann hóf ferilinn hjá Ajax

Zlatan Ibrahimovich.
Zlatan Ibrahimovich. Nordic Photos / Getty Images
Leo Beenhakker, sem var íþróttastjóri hjá Ajax þegar Zlatan Ibrahimovic gekk til liðs við hollenska knattspyrnuliðið á sínum tíma, segir að sænski landsliðsframherjinn hafi átt erfitt uppdráttar hjá félaginu þegar hann hóf atvinnumannaferilinn. „Hann hagaði sér eins og drullusokkur og eftir þrjár vikur voru aðeins tveir sem höfðu trú á honum, ég og hann sjálfur," segir hinn sjötugi Beenhakker í viðtali við The Blizzard.

Beenhakker fékk Zlatan til liðsins frá Malmö í Svíþjóð þar sem framherjinn hóf ferilinn.

„Fyrsta vikan var skelfilegt og eftir þrjár vikur bauluðu 50.000 stuðningsmenn Ajax á hann. Þjálfarar liðsins, liðsfélagar og stjórnendur félagsins horfðu ekki í augun á mér. Að lokum voru bara tveir sem höfðu trú á leikmanninum. Ég og hann sjálfur. Það vildu allir drepa mig fyrir að hafa fengið hann til liðsins."

Zlatan hefur aðeins tvívegis lent í mótvind á ferlinum, á fyrstu vikunum hjá Ajax og hann náði sér aldrei á strik hjá Barcelona á Spáni. Hjá öðrum vinnuveitendum hefur hinn 31 árs gamli framherji skilað sínu.

Beenhakker segir að fáir geti umgengist Zlatan. „Frá fyrstu mínútu var hann búinn að gera alla brjálaða í búningsklefanum og á æfingum. Ég hugsaði með mér; hver í fjandanum er þessi djöfull? En ég elskaði þessa eiginleika hans," bætti hinn sjötugi Beenhakker við.

„Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að lið sem er skipað ellefu drullusokkum sé meistaralið. Leikmenn með mikið sjálfstraust eru einnig persónuleikar sem öll lið þurfa að hafa. Það er ekki auðvelt að þjálfar leikmenn á borð við Hugo Sánchez eða Bernd Schüster, sem eru eflaust drullusokkar, en þeir skiluðu alltaf sínu fyrir liðið."

Beenhakker segir ennfremur að Ajax hafi „stolið" Zlatan fyrir framan nefið á Fabio Capello sem var á þeim tíma þjálfari stórliðsins AC Milan. „Ég hitti Capello nokkrum dögum eftir að Zlatan kom til okkar. Hann var ekki sáttur við niðurstöðuna og öskraði ókvæðisorðum að mér. Ég svaraði að stundum væri heppnin með manni í liði."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×