Viðskipti erlent

Himinháar tekjur Hobbitans

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Peter Jackson, leikstjóri Hobbitans, ásamt Katie dóttur sinni.
Peter Jackson, leikstjóri Hobbitans, ásamt Katie dóttur sinni. Mynd/ AFP.
Það stefnir allt í það að myndin Hobbitinn: Óvænt ferðalag setji nýtt tekjumet. Tekjur vegna myndarinnar á föstudaginn, fyrsta sýningardegi í Bandaríkjunum, námu 37,5 milljónum dala. Spár gera ráð fyrir því að tekjur yfir helgina verði að minnsta kosti 85 milljónir dala. Sumir telja að tekjurnar geti farið allt upp í 100 milljónir, eða um 12,7 milljarða íslenskra króna. Aldrei hafa tekjur af nokkurri mynd, sem sýnd er í desember, verið jafn háar. Utan Bandaríkjanna hafa tekjur myndarinnar numið um 27 milljónum bandaríkjadala, eða um 3,4 milljörðum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×