Viðskipti erlent

Kremlarbréf Napoleons fyrir 200 árum sett á uppboð

Um 200 ára gamalt bréf sem skrifað var af Napoleon Bonaparte þar sem hann heitir því að sprengja Kreml í loft upp verður boðið upp í dag hjá Osenat uppboðshúsinu í París.

Bréfið er frá inni illaheppnuðu innrás Napoleons í Rússland árið 1812 og er skrifað á dulmáli. Það var sent fjármálaráðherra Napoleons í París á sínum tíma. Í því segir í fyrstu línu: „Þann 22. Klukkan 3 um nóttina mun ég sprengja Kreml."

Bréfið verður selt ásamt þýðingu á dulmálinu. Í því kemur fram óánægja Napoleon yfir því hversu innrásin í Rússland gangi illa þar sem her hans þjáist af sjúkdómum, kulda og hungri. Þar að auki sé herinn þegar að hörfa frá Moskvu.

Napoleon stóð við þau orð sína að sprengja Kreml í loft upp, það er veggi og turna Kremlar áður en hann hóf undanhald sitt frá Moskvu.

Forstjóri Osenat telur að bréf þetta verði slegið á allt að 15 þúsund evrur eða tæplega 2,5 milljónir kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×