Viðskipti erlent

Danir halda áfram að auka við sparifé sitt

Almenningur í Danmörku heldur áfram að auka við sparifé sitt. Nýjar tölur frá seðlabanka landsins sýna að sparnaðurinn jókst um 36 milljarða danskra króna eða um nærri 800 milljarða króna á síðustu 12 mánuðum.

Sparnaður almennings í heild nemur nú 840 milljörðum danskra króna sem samsvarar því að hver Dani eigi nú 150.000 danskar krónur eða yfir 3 milljónir króna að meðaltali inn á sparireikningi sínum. Sú upphæð hefur vaxið um 6.500 danskar krónur á síðustu 12 mánuðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×