Fótbolti

Stelpurnar lentu aftur í riðli með Evrópumeisturum Þjóðverja

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Daníel
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta verður í riðli með Þýskalandi, Noregi og Hollandi í úrslitakeppni Evrópumótsins sem fer fram í Svíþjóð næsta sumar. Dregið var í riðla í Gautaborg í kvöld.  Svíar og Danir mætast í opnunarleik keppninnar.

Ísland var líka í riðli með Þýskalandi og Noregi í síðustu úrslitakeppni EM og þær norsku voru líka með íslenska liðinu í riðli í undankeppninni fyrir EM í Svíþjóð. Íslenska liðið spilar leiki sína í Kalmar og Växjö.

Liðunum var raðað í styrkleikaflokka eftir árangri þeirra í undanförnum þremur EM og HM keppnum. Úrslitakeppnin fer fram 10. til 28. júlí. Riðill A verður leikinn í Gautaborg og Halmstad, riðill B í Vaxjo og Kalmar og riðill C í Norrkoping og Linköping. Átta liða úrslit verða leikinn í Halmstad, Vaxjo, Linkoping og Kalmar, undanúrslit í Gautaborg og Norrkoping. Úrslitaleikurinn verður leikinn á hinum glænýja Solna Arena velli.

Þetta er annað Evrópumeistaramót íslensku stelpnanna en þær voru einnig með í síðustu keppni sem fór fram í Finnlandi sumarið 2009. Íslenska liðið var þá í riðli með Þýskalandi, Frakklandi og Noregi en þær þýsku fóru alla leið og urðu Evrópumeistarar, Norðmenn komust í undanúrslitin og Frakkland datt út í átta liða úrslitunum eftir tap í vítaspyrnukeppni.

Riðlarnir á EM í Svíþjóð:

A-riðill (spilaður í Gautaborg og Halmstad)

Svíþjóð

Ítalía

Danmörk

Finnland

B-riðill (spilaður í Kalmar og Växjö)

Þýskaland

Noregur

Holland

Ísland

C-riðill (spilaður í Norrköping og Linköping)

Frakkland

England

Rússland

Spánn




Fleiri fréttir

Sjá meira


×