Viðskipti erlent

Japanski seðlabankinn grípur til aðgerða

Masaaki Shirakawa, seðlabankastjóri Japans.
Masaaki Shirakawa, seðlabankastjóri Japans.
Japanski seðlabankinn hefur ákveðið að grípa til aðgerða með það fyrir augum að styðja við hagvöxt og styrkja efnahag landsins. Áætlun bankans gengur út að stækka stuðningssjóð landsins um 78 milljarða dala, eða sem jafngildir tæplega 10 þúsund milljörðum króna. Sjóðurinn er nýttur til þess að kaupa skuldabréf á markaði með það fyrir augum að halda lántökukostnaði Japans niðri, að því er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

Jun Azumi, fjármálaráðherra Japans, segir að aðgerðir japanska seðlabankans hafi verið muni umfangsmeiri en búist hafi verið við. Masaaki Shirakawa, seðlabankastjóri Japans, segir að bankinn hafi ákveðið að bregðast við líkt og Seðlabanki Evrópu og Seðlabanki Bandaríkjanna hafa gert, vegna þess að hagtölur fyrir mörg stærstu hagkerfi landsins sýni að hætta sér á löngu samdráttarskeiði.

Sjá má frétt BBC um þessi mál, hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×