Viðskipti erlent

Nokia veðjar öllu á smáatriðin

Magnús Halldórsson skrifar
Stephen Elop, forstjóri Nokia.
Stephen Elop, forstjóri Nokia.
Finnska fjarskiptafyrirtækið Nokia freistar þess nú að ná vopnum sínum á símamarkaði á nýjan leik, eftir nærri 8 ára samdráttarskeið. Fyrirtækið veðjar öllu á nýja Windows 8 síma fyrirtækisins, Lumia 920, sem er útbúinn þráðlausum hleðslubúnaði auk óvenju næmrar myndavélar.

Tony Cripps, sérfræðingur í tæknimálum sem breska ríkisútvarpið BBC ræðir við, segir að Lumia 920 síminn sé rökrétt framhald á því sem Nokia hafi verið að gera síðan Stephen Elop, fyrrverandi stjórnandi hjá Microsoft, tók við stjórnartaumunum fyrir um ári síðan. Reksturinn hefur einkennst af mikilli hagræðingu, en um leið stefnubreytingu. "Nýir snjallsímar eru flestir búnir einhverri sérhæfingu og smáatriðum sem ekki er að finna á öðrum símum. Það getur oft verið erfitt fyrir neytendur að finna muninn á ólíkum tegundum síma, þar sem þeir eru líkir. Þess vegna skiptir máli að smáatriðin, og aukahlutirnir, séu vel útfærðir," segir Cripps.

Sjá má umfjöllun BBC um nýja símanum frá Nokia, sem kynntur var opinberlega í New York í gær, hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×