Viðskipti erlent

Fáni ESB brenndur í Grikklandi

Frá Thessaloniki í gær.
Frá Thessaloniki í gær. mynd/AP
Rúmlega 15 þúsund mótmælendur voru í gær saman komnir í borginni Thessaloniki, næststærstu borg Grikklands, til að mótmæla niðurskurði og skerðingu lífeyrissparnaðar sem grísk stjórnvöld hafa þurft að innleiða sem eitt af skilyrðum vegna fjárhagslegrar aðstoðar frá evruríkjunum og AGS. En björgunarpakkinn er nauðsynlegur til að forða ríkinu frá gjaldþroti.

Mótmælendurnir brenndu fána Evrópusambandsins og köstuðu vatnsmelónum, að því er fréttaveitan Reuters greinir frá.

Um er að ræða fyrstu stóru mótmælaaðgerðirnar í landinu síðan ríkisstjórnin, undir forystu Antonis Samaras forsætisráðherra, gekk frá 12 milljarða evra áætlun um aðhald í ríkisfjármálum.

Eftirlitsmenn frá Evrópusambandinu og AGS komu til Aþenu á föstudag til að skoða árangur stjórnvalda áður en ríkið fær frekari greiðslur úr björgunarpakkanum, sem samtals nemur 174 milljörðum evra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×