Viðskipti erlent

iPhone 5 væntanlegur á næstu dögum

BBI skrifar
Mynd/AFP
Sá orðrómur er nú í hámæli að Apple hyggist sleppa frá sér nýrri útgáfu af iPhone 12. september og „iPad mini" - smækkaðri gerð af spjaldtölvunni vinsælu - einhvern tíma í október.

Ljósmyndir sem lekið hafa á netið benda til þess að síminn verði lengri og þynnri með stærri skjá og endingarbetra batteríi. Þá bendir allt til þess að tengið á símanum verði ekki með sama sniði og verið hefur.

Spekúlantar þykjast einnig vissir um að Apple muni sleppa smærri gerð af iPad á markað, jafnvel þó að Steve Jobs hafi á sínum tíma sagt að ekkert vit væri í að framleiða 7 tommu spjaldtölvu nema notendur fengju sandpappír í kaupbæti til að pússa fingurna sína niður í fjórðung af venjulegri stærð svo þeir gætu notað skjáinn. Engu að síður búast menn við að nýja gerðin af iPad verði aðeins 7 tommur að stærð, en eldri gerðin er 10 tommur.

Þessi smærri gerð af iPad yrði í rauninni fyrsta nýja Apple-varan sem kemur eftir að Steve Jobs lést á síðasta ári. Því verður spennandi að fylgjast með gengi hennar í samkeppni við vörur frá Amazon og Google.

The Guardian segir frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×