Viðskipti erlent

Hrun tölvukerfis Royal Bank of Scotland kostar 125 milljónir punda

Magnús Halldórsson skrifar
Hrun tölvukerfis Royal Bank of Scotland er að reynast bankanum dýrkeypt, en upplýst var um það í dag að bankinn þarf að greiða völdum viðskiptavinum bankans 125 milljónir punda, eða sem nemur 23,75 milljörðum króna. Vegna hruns tölvukerfisins lentu viðskiptavinir bankans í erfiðleikum með að nálgast fjármuni sína yfir tveggja vikna tímabil í júní, með fyrrgreindum afleiðingum fyrir bankann.

Um þetta var upplýst þegar bankinn tilkynnti um afkomu sína á fyrstu sex mánuðum ársins, en bankinn tapaði 1,5 milljarði punda á því tímabili. Á sama tímabili í fyrra tapaði bankinn 794 milljónum punda, eða sem nemur ríflega 15 milljörðum króna.

Tekjur bankans á fyrrnefndu tímabili féllu um 8 prósent frá fyrra ári, og námu 13,2 milljörðum punda, jafnvirði 2.500 milljarða króna.

Breska ríkið á mikla hagsmuni undir þegar kemur að Royal Bank of Scotland en ríkið þjóðnýtti 82 prósent hlut í bankanum haustið 2008, eftir fall Lehman Brothers, og er nú sagt leita leiða til þess að kaupa afganginn af hlutafénu til þess að auka líkur á því að geta selt bankann innan næstu tveggja ára, eins og að er stefnt.

Sjá má frétt breska ríkisútvarpsins BBC um málið, hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×