Viðskipti erlent

Hættur daglegum afskiptum af rekstri dagblaða

JHH skrifar
Murdoch er ern, þótt gamall sé.
Murdoch er ern, þótt gamall sé. mynd/ afp
Rupert Murdoch er hættur daglegum afskiptum af rekstri dagblaða sem eru í eigu fyrirtækis hans, News Corporation. Fyrirtækið er umsvifamikið í rekstri dagblaðaútgáfu, bókaútgáfu, á sjónvarpsmarkaði og kvikmyndamarkaði. Til stendur að skipta fyrirtækinu upp í tvennt, annars vegar í fyrirtæki í rekstri dagblaða- og bókaútgáfu en hins vegar fyrirtæki sem rekur sjónvarpsstöðvar og kvikmyndahús. Fréttastofa breska ríkisútvarpsins, BBC, segir að búist sé við því að Murdoch gegni stjórnarformennsku í báðum fyrirtækjum en verði einungis forstjóri í sjónvarps- og kvikmyndafyrirtækinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×