Viðskipti erlent

Útlit fyrir að nýja Batman myndin slái öll sölumet

Allt útlit er fyrir að nýjasta Batman myndin muni slá öll sölumet þegar hún verður frumsýnd um næstu mánaðarmót.

Myndin hefur hlotið nafnið The Dark Knight Rises og er með óskarsverðlaunahafanum Christian Bale í hlutverki leðurblökumannsins.

Í umfjöllun Huffington Post um málið segir að þótt enn séu þrjár vikur í frumsýningu myndarinnar hafa þegar selst miðar á hana fyrirfram fyrir um 150 milljónir dollara eða um 19 milljarða króna. Fyrirframsalan er sú mesta í sögunni hingað til.

Síðast sölumet leit dagsins ljós þegar myndin The Avangers náði inn 200 milljónum dollara á fyrstu sýningarviku sinni. Miðað við fyrirframsöluna á Batman myndinni mun það met verða slegið.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Christopher Nolan leikstjóri The Dark Knight Rises á góða fjárhagslega spretti með myndir sínar. Síðasta Batman mynd hans, The Dark Knight átti bestu frumsýningarhelgina í sögunni í fjögur ár þar til síðasta Harry Potter myndin sló það met í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×