Viðskipti erlent

Microsoft gerir atlögu að Apple - Surface kynnt til sögunnar

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Tæknirisinn Microsoft ryður sér nú til rúms á spjaldtölvumarkaðinum en Steve Ballmer, stjórnarformaður fyrirtækisins, opinberaði hina nýstárlegu Surface spjaldtölvu um helgina.

Surface hefur vakið mikla athygli en hönnun hennar þykir afar frumleg. Spjaldtölvan er knúin af nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 8, og munu viðskiptavinir Microsoft geta valið milli Intel eða ARM örjörva.

Þannig verður hægt að keyra öll helstu forrit Windows stýrikerfisins í Surface, þar á meðal Office hugbúnaðarpakkann og myndvinnsluforritið Photoshop.

Surface verður knúin af Windows 8 stýrikerfinu.mynd/AP
Nokkur tæknifyrirtæki hafa þó gagnrýnt Microsoft fyrir að þróa sína eigin spjaldtölvu en fjölmargar spjaldtölvur koma til með að nota Windows 8 stýrkerfið þegar það kemur á markað.

Ballmer gefur þó lítið fyrir áhyggjur fyrirtækjanna. Hann bendir á að það sé nauðsynlegt fyrir Microsoft að bjóða upp á viðeigandi tækjabúnað fyrir hugbúnað sinn.

Snertiskjár Surface er 11 tommur að stærð og er umgjörð hennar úr steyptu magnesíni. Þá verður hægt að tengja lyklaborð við tölvuna.

Hægt er að sjá kynningarmyndband fyrir Surface hér fyrir ofan. Áhugasamir geta síðan kynnt sér ítarlega umfjöllun tæknifréttasíðunnar The Verge um spjaldtölvuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×