Viðskipti erlent

Ekkert lát er á verðlækkunum á olíu

Ekkert lát er á verðlækkunum á heimsmarkaðsverði á olíu. Sérfræðingar reikna með að sú þróun haldi áfram fram á sumarið.

Tunnan af Brent olíunni er komin undir 102 dollara og hefur verð hennar ekki verið lægra síðan í desember á síðasta ári. Verð á bandarísku léttolíunni er komið undir 87 dollara á tunnuna og hefur ekki verið lægra síðan í október í fyrra.

Í frétt um málið á vefsíðunni Forexpros segir að reiknað sé með frekari lækkunum á olíuverðinu á næstunni. Helsta ástæðan fyrir þessari þróun er að hráolíubirgðir Bandaríkjanna uxu mun meir en gert var ráð fyrir í næstsíðustu viku maímánaðar og standa nú í tæpum 400 milljónum tunna. Hafa brigðirnar ekki verið meiri síðan árið 1990. Þetta er talið merki um að efnahagur Bandaríkjanna sé ekki að ná sér á strik eins og væntingar voru um.

Áframhaldandi erfiðleikar á evrusvæðinu þar sem vangaveltur eru komnar upp um að Spánn þurfi að leita á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa einnig haft áhrif til lækkunar á olíuverðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×