Viðskipti erlent

ESB: Tap á bönkum lendi ekki á skattborgurum

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun í dag kynna nýjar tillögur sem miða að því að koma í veg fyrir að peningar skattborgara séu notaðir til þess að bjarga bönkum sem eru að falli komnir.

Tillögurnar ganga út á að tapið af bönkum sem eru að hruni komnir lendi á hluthöfum bankanna og lánadrottnum þeirra. Komast á hjá því með öllum ráðum að nota opinbert fé til þess að bjarga bönkum eða halda þeim á floti þegar ljóst er að þeir eigi sér vart viðreisnar von.

Framkvæmdastjórnin vill koma í veg fyrir að áhlaup á banka í einstökum löndum eins og Grikklandi og Spáni valdi því að allt bankakerfi viðkomandi landa hrynji. Einnig að á að koma í veg fyrir að keðjuverkun skapist þannig að bankakerfi annarra landa lendi ekki í svipuðum vanda.

Fjallað er um málið á BBC en þar segir að lykilatriði í tillögunum sé að nauðsynleg bankastarfsemi, eins og hraðbankar, haldi áfram þótt bankar fari á hausinn. BBC bendir á að fjármálakreppan hafi leitt til þess að fjöldi banka hafi orðið gjaldþrota. Þeir starfa þó áfram í skjóli þess að peningum skattborgara í viðkomandi löndum hefur dælt í þá í miklu magni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×