Viðskipti erlent

Hlutabréf í Facebook halda áfram að falla í verði

Ekkert lát er á hremmingum þeirra sem fjárfestu í hlutbréfum Facebook þegar samskiptavefsíðan var skráð á markað í síðasta mánuði.

Verðið á hlutbréfunum féll um tæp 4% á mörkuðum vestanhafs í gærkvöldi og hefur því fallið um 32% frá því að bréfin voru sett á markað þann 18. maí.

Miklar vangaveltur hafa verið um getu Facebook til að auka tekjur sínar nægilega mikið til að standa undir þeim væntingum sem gerðar voru um tekjurstreymið þegar Facebook var skráð á markaðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×