Viðskipti erlent

Forstjóri Shell spáir lækkandi olíuverði út þetta ár

Peter Voser forstjóri Shell olíufélagsins segir að heimsmarkaðsverð á olíu muni lækka áfram á seinnihluta þessa árs og ekki ná sér á strik að nýju fyrr en á næsta ári.

Þetta kemur fram í viðtali Reuters við Voser en hann segir að olíuverðið muni lækka áfram næstu mánuði einkum vegna þess að efnahagsbatinn á Vesturlöndunum lætur á sér standa og að verulega hafi dregið úr spennu í alþjóðlegum stjórnmálum. Á hann þar m.a. við batnandi samskipti Írans og Vesturveldanna og að olíuframleiðslan í Lýbíu er að nálgast það sem hún var fyrir uppreisnina gegn Muammar Gaddafi þar í landi.

Voser hefur starfað í 30 ár fyrir Shell, þar af sem forstjóri síðustu 3 árin að því er fram kemur á Reuters. Hann telur að eftirspurn eftir olíu muni aukast á næsta ári og þar með muni heimsmarkaðsverðið fara hækkandi að nýju.

Tunnan af Brent olíunni fór niður fyrir 96 dollara fyrir nokkrum dögum og var það lægsta verð hennar í 16 mánuði. Verðið hefur þó verið að þokast upp á við á síðan og er komið yfir 99 dollara á tunnuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×