Viðskipti erlent

Þrýst á spænsk stjórnvöld um að leita hjálpar

Magnús Halldórsson skrifar
Hlutabréfamarkaðir hafa sveiflast nokkuð síðustu daga, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Það er ekki síst rakið til vandamála Spánar.
Hlutabréfamarkaðir hafa sveiflast nokkuð síðustu daga, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Það er ekki síst rakið til vandamála Spánar.
Vaxandi þrýstingur er nú á spænsk stjórnvöld meðal evruríkja um að þau leiti á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins og óski formlega eftir fjárhagsaðstoð vegna slæmrar stöðu fjármálakerfisins í landinu og mikilla ríkisskulda. Á vef Wall Street Journal segir að embættismenn ríkja Evrópusambandsins muni funda um helgina vegna alvarlegrar stöðu Spánar og reyna að komast að niðurstöðu fyrir mánudaginn nk. um hvað gera skuli.

Á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC segir að vel sé mögulegt að Spánn leiti hjálpar á mánudaginn en þar er haft eftir fjármálaráðherra Hollands, Jan Kees de Jager, að vandi Spánar sé „alvarlegur" og aðgerða sé þörf strax.

Spænska hagkerfið er hið sjötta stærsta í Evrópu um þessar mundir á eftir því þýska, franska, breska, ítalska og rússneska.

Sjá má umfjöllun WSJ um vanda Spánar hér, og umfjöllun BBC hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×