Viðskipti erlent

Liggur á að leysa vanda Spánar

BBI skrifar
Það liggur á að leysa vandamál Spánar miðað við orð Jean-Claude Juncker, sem stýrir fundum fjármálaráðherra Evrópusambandsins (ESB). Talið er að stjórnvöld í Brussel og Þýskalandi vilji afgreiða vandamál Spánar fyrir þingkosningar sem fara fram í Grikklandi 17. júní næstkomandi.

Fjármálaráðherrarnir héldu í dag blaðamannafund til að ræða möguleika á neyðaraðstoð vegna spænskra banka. Fram hefur komið að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur bankakerfi Spánar þurfa á 6.500 milljarða króna innspýtingu að halda (40 milljarða evra). Fréttir herma að á fundi fjármálaráðherranna í dag hafi verið rætt um allt að 100 milljarða evra aðstoð (yfir 16 milljarða króna).

Ekkert verður af aðstoðinni nema stjórnvöld á Spáni óski formlega eftir henni. Það hefur enn ekki verið gert en menn búast við því að beiðnin verði sett fram innan tíðar.

Umfjöllun BBC um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×