Viðskipti erlent

Hörmulegar aðstæður í verksmiðjum stórfyrirtækja

BBI skrifar
Tim Cook, stjórnarformaður Apple, segir að fyrirtækið hafa lagt allt í sölurnar til að lækka yfirvinnutíma í verksmiðjunum.
Tim Cook, stjórnarformaður Apple, segir að fyrirtækið hafa lagt allt í sölurnar til að lækka yfirvinnutíma í verksmiðjunum.
Vinnuaðstaðan í Foxconn verksmiðjunum í Kína er afleit og refsingar virðast helsta stjórnunaraðferðin. Þetta kemur fram í rannsókn sem birt var síðastliðinn fimmtudag.

Í verksmiðjunum eru m.a. framleiddar vörur fyrir Apple, Amazone, Dell og Nokia.

Í rannsókninni kemur fram að starfsfólk vinnur „kúgað og uppgefið" allt að 80 klst. yfirvinnu á mánuði. Ef starfsfólk á annað borð fær leyfi til að sitja við vinnu sína er því skipað að sitja aðeins á einum þriðjahluta stólsins til að halda sér vakandi og einbeittu. Þá segir einnig að starfsmönnum sé búin hörmuleg svefnaðstaða þar sem 20-30 manns séu saman um þriggja rúma herbergi.

Apple hefur áður gefið út að hver einasti starfsmaður sem kemur að vörum þess skipti máli. Fyrirtækið vill leggja allt í sölurnar svo þeir sem framleiða vörur fyrir Apple starfi við mannsæmandi aðstæður. Vegna yfirlýsinga af þessum toga þykir niðurstaða rannsóknarinnar ákveðið áfall fyrir Apple.

Rannsóknin var gerð af samtökunum Sacom. Tekið var viðtal við 170 verkamenn og yfirmenn í verksmiðjunum á tímabilinu frá mars fram í maí.

Um þetta var fjallað í Guardian í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×