Viðskipti erlent

Buffett: Ekki hægt annað en að hækka skatta á ríkt fólk

Warren Buffet fjárfestir.
Warren Buffet fjárfestir.
Warren Buffett, fjárfestirinn virti, segir að vandi bandaríska ríkisins sé svo stór, þar sem ríkið hafi árum saman eytt meiru en það aflar ár hvert, að ekki verði hjá því komist að hækka skatta á ríkt fólk.

Buffett segir ríkasta hluta Bandaríkjanna hafa borgað 26 prósent skatt árið 1992 en hann hafi minnkað jafnt og þétt og sé nú 18 prósent. Á sama tíma hafi rekstur ríkisins farið gjörsamlega úr böndunum. Þetta gangi ekki.

Sjá má viðtal við Buffett um þess mál inn á viðskiptavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×