Viðskipti erlent

Huang Nubo reisir heilsuþorp í Kína í stað Íslands

Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo hefur gert samkomulag við yfirvöld í suðvesturhluta Kína um uppbyggingu heilsuþorps í anda þess sem hann hugðist reisa á Grímsstöðum á Fjöllum en var neitað af innanríkisráðherra á sínum tíma.

Á fréttasíðunni crienglish.com kemur fram að fjárfestirinn stefni á að reisa nokkurskonar heilsuþorp á sextíu ferkílómetra svæði í bænum Pu´er í Yunna héraði sem liggur að landamærum Myanmar, Laos, og Víetnam.

Áætlað er að heildarfjárfestingin nemi átta milljörðum dollara en Nubo er sagður leita fleiri fjárfesta til þess að koma að uppbyggingu þorpsins.

Í byrjun febrúar greindi fréttastofa Stöðvar 2 frá því að Sveitarfélagið Norðurþing íhugaði að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum með láni frá Huang Nubo og leigja honum hana síðan.

Sveitarfélagið myndi þá eiga jörðina á móti ríkinu sem á fjórðungshlut. Bæjarstjóri Norðurþings fór sérstaklega til Peking til að hitta Nubo og ræða hugsanleg viðskipti.

Kaupsamningur milli kínverska fjárfestisins Huang Nubo og landeigenda Grímsstaða á Fjöllum hljóðaði upp á 800 milljónir króna fyrir 72 prósenta hlut í jörðinni. Ríkið hefði þá átt 25 prósent og þá eru 3 prósent í eigu einstaklinga á svæðinu. Ekki er ljóst hvort þessi áform hafi verið slegin út af borðinu í ljósi fregna af risafjárfestingu Nubo í Yunna héraðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×