Viðskipti erlent

Icelandair hækkaði um tæp 3 prósent

Icelandair.
Icelandair.
Gengi bréfa í Icelandair Group hækkaði um 2,83 prósent í dag og stendur gengið nú í 5,45. Eftir að fjárhagur Icelandair Group var endurskipulagður, og félagið skráð, þá var gengi bréfa 2,5. Markaðsvirði félagsins hefur því meira en tvöfaldast frá þeim tíma.

Eins og greint var frá fyrr í dag á Vísi gerir greiningardeild Arion banka ráð fyrir því að tekjur Icelandair Group á fjórða ársfjórðungi síðasta árs verði 20 milljarðar króna og EBITDA verði um 400 milljónir króna. Ársfjórðungsuppgjör verður birt í þessari viku.

Í Markaðspunktum Arion segir að fyrsti og fjórði ársfjórðungur séu vallt lökustu fjórðungarnir hjá félaginu bæði hvað veltu og afkomu varðar. Miðað við flutningstölur félagsins megi gera ráð fyrir töluverðum tekjuvexti frá fyrra ári. Samkvæmt afkomuspá stjórnenda Icelandair Group frá nóvember síðastliðnum er gert ráð fyrir að EBITDA félagsins á fjórða ársfjórðungi verði lítil sem engin eða neikvæð um allt að 500 milljónir króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×