Viðskipti erlent

Koddahjal kostaði seðlabankastjóra Sviss starfið

Gjaldeyrisbrask eiginkonu Philip Hildebrand formanns bankastjórnar Svissneska seðlabankans kostaði hann starfið.

Þetta mál hefur tröllriðið svissneskum fjölmiðlum undanfarna daga. Það endaði með því að Hildebrand ákvað að segja af sér í gær.

Höfuðástæðan fyrir afsögn hans er að Hildebrand getur ekki sannað að eignkona hans hafi ekki notað innherjaupplýsingar, í þessu tilviki koddahjal þeirra hjóna, til að græða stórar fjárhæðir á gjaldeyrisbraski.

Eiginkonan Kashya að nafni er fyrrum forstjóri vogunarsjóðs en rekur nú listagallerí í Zurich. Hún notaði sameiginlegan reikning þeirra hjóna í Sarasin bankanum til þess að kaupa hálfa milljón dollara s.l. haust aðeins þremur vikum áður en eiginmaður hennar stóð fyrir stórfelldum aðgerðum til að veikja gengi svissneska frankans. Síðan seldi hún dollarana og græddi um 75 þúsund svissneskra franka á þessum viðskiptum eða sem nemur um 10 milljónum króna.

Sjálf hefur Kashya beðið svissnesku þjóðina afsökunar á því að hafa kostað eiginmann sinn starfið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×