Viðskipti erlent

Mafían orðin stærsti banki Ítalíu vegna kreppunnar

Kreppan sem ríkir í Evrópu hefur gert það að verkum að mafían á Ítalíu er orðinn stærsti banki landsins.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá samtökunum SOS Impresa sem staðsett eru í Palermo á Sikiley og berjast gegn áhrifum skipulegra glæpasamtaka innan smærri fyrirtækja á Ítalíu. Samtökin segja að ítök mafíunnar í þessum fyrirtækjum séu orðin ógn við þjóðaröryggi landsins.

Velta ítölsku mafíunnar er áætluð um 140 milljarðar evra, eða um 22.000 milljarðar kr. á ári sem svarar til 7% af landsframleiðslu landsins. Árlegt lausafé mafíunnar nemur 65 milljörðum evra og þetta þýðir að glæpasamtökin eru orðin að stærsta banka landsins að mati SOS Impresa.

Okurlánastarfsemi er orðin álíka tekjulind og fíkniefnasala, vændi og vopnasmygl. En í stað skuggalegra manna með hafnaboltakylfur fer lánastarfsemin nú fram í gegnum lögfræðinga á vegum mafíunnar. Þessi starfsemi blómstrar þar sem bankar gera æ ríkari kröfur fyrir lánveitingum sínum í kreppunni og fyrirtækjaeigendur neyðast því til að leita á náðir mafíunnar.

Fari svo að eigendurnir geti ekki staðið í skilum með þessi okurlán hirðir mafían einfaldlega fyrirtækin af þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×