Viðskipti erlent

Nýr forstjóri Yahoo!

Scott Thompson er nýr forstjóri tölvurisans Yahoo!
Scott Thompson er nýr forstjóri tölvurisans Yahoo!
Yahoo! réð í dag Scott Thompson sem nýjan forstjóra fyrirtækisins, en hann var áður framkvæmdastjóri PayPal, sem er undir ebay.

Yahoo! hefur verið forstjóralaust frá því í september þegar að Carol Bratz var rekin úr starfinu. Fjármálastjóri fyrirtækisins hefur gegnt starfinu síðan þá tímabundið.

Hlutabréf í Yahooo lækkuðu um tvö prósent í morgun þegar að tilkynnt var um ráðninguna en sú lækkun kemur sérfræðingum á óvart sem segja að mikil virðing sé borin fyrir Thompson í internet-geiranum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×