Viðskipti erlent

Heimsmarkaðsverð á olíu snarlækkar

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur snarlækkað á síðustu dögum eða um allt að 5%. Þannig hefur Brent olían lækkað úr tæpum 110 dollurum á tunnuna og niður í tæpa 105 dollara og bandaríska léttolían hefur lækkað úr 100 dollurum á tunnuna og niður í 95 dollara.

Þetta er í takt við lækkanir á öðrum hrávörum að undanförnu en ástæðan fyrir þeim er helst hið bágborna efnahagsástand í Evrópu og nokkur kólnun í kínverska hagkerfinu. Þannig hefur verð á gulli hrapað um nær 10% og verð á korni hefur lækkað um 2,5%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×