Viðskipti erlent

Economist fjallar um velgengi Svía í kreppunni

Hagfræðitímaritið The Economist fjallar um efnahagslega velgengni frænda vorra Svía en hagvöxtur þar í landi er mun hærri en í öðrum Evrópulöndum.

Í grein Economist segir að  töluverður hluti af velgengi Svía felst í að þeir hafa sína eigin mynt í hagkerfi sem er drifið áfram af útflutningi. Svíar höfnuðu því síðast að taka upp evruna árið 2003. Þeir eru ánægðir í dag að vera fyrir utan evrusvæðið.

Samt telur Anders Borg fjármálaráðherra landsins að til lengri tíma litið eigi Svíar að taka upp evruna. Borg bendir á að sænska krónan sé ekki nema hluti af velgengninni. Vegna þess að Svíar eru utan evrunnar hafi þeir þurft að gæta vel að því að hafa agaða og aðhaldssama hagstjórn. Þar hafi þeir m.a. byggt á reynslunni af bankahruninu í landinu fyrir rúmum 15 árum síðan.

Í greininni er einnig sagt frá því að Svíþjóð hefur  veitt Íslandi, Írlandi og Lettlandi neyðarlán í kreppunni. Anders Borg segir að Svíar hafi ákveðið að veita þessu löndum lánin þar sem þau hafi sýnt sannfærandi metnað í að hreinsa til í hagstjórnaróreiðu sinni. Hann hefur mun minna álit á stjórnvöldum í Grikklandi og Ítalíu og segir þau þurfa að gera miklu meira.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×