Viðskipti erlent

Hlutabréf lækkuðu í dag

Hlutabréf í Kauphöllinni á Wall Street lækkuðu verulega í dag. Dow Jones lækkaði um 1,40%, S&P 500 um 1,68%. Svipað var upp á teningnum í Evrópu. Þar lækkaði DAX vísitalan um 1,07% og CAC 40 um 1,78%.

Fréttastofa BBC sagði frá því í dag að lánsfjármögnunarkostnaður á Spáni hefði náð methæðum í dag, þegar skuldabréf voru seld. Vextir af bréfunum eru 6,975% og hafa ekki verið hærri síðan árið 1997.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×