Formúla 1

Fyrrum meistari í dómaraherberginu

Nigel Mansell er enn að. Hann keppti m.a. í Le Mans kappakstrinum fræga á þessu ári og hittir hér aðdáendur.
Nigel Mansell er enn að. Hann keppti m.a. í Le Mans kappakstrinum fræga á þessu ári og hittir hér aðdáendur. Mynd: Getty Images
Bretinn Nigel Mansell sem varð heimsmeistari í Formúlu 1 árið 1992 verður dómurum til aðstoðar á breska kappakstrinum á Silverstone um helgina. Reyndir og þekktir ökumenn hafa verið fengnir dómurum til aðstoðar í mótum á þessu ári. Autosport.com greinir frá þessu. Mansell vann mótið á Silverstone 1987, 1991 og 1992 og var geysilega vinsæll á sínum tíma. Hann hafði munninn fyrir neðan nefið og var harðskeyttur í mótum. Mansell var heiðrar með OBE orðunni bresku fyrir framlag sitt til akstursíþrótta, en hann keppti í 15 ár í Formúlu 1. Mansell ók í Formúlu 1 fyrir Lotus, Williams, Ferrari og í tveimur mótun með McLaren á ferlinum og vann 31 sigur og komst 59 sinnum á verðlaunapall. Á þessu ári keppti Mansell í Le Mans mótaröðinni með sonum sínum Greg og Leo, en hlekktist á í hinum sögufræga Le Mans kappakstri og er enn að jafna sig eftir það að sögn autosport.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×