Ósamræmi í krónuspám: Mikið ber á milli í krónuspám greiningardeilda. 6. september 2006 00:01 Frá Kynningu Þjóðhagsspár Glitnis á Nordica Ósamræmi er í spám greiningardeilda Landsbankans og Glitnis um gengisþróun. Greiningardeildirnar eru ósammála um áhrif minnkandi vaxtamunar hér og í viðskiptalöndum landsins. MYND/GVA
Greining Glitnis les ekki rétt í minnkandi vaxtamun í þjóðhagsspá sinni, að mati Björns Rúnars Guðmundssonar, sérfræðings greiningardeildar Landsbankans. Hann telur að ekki bresti flótti á fjárfesta þótt minni munur verði á vaxtastigi hér og í viðskiptalöndum landsins. Ósamræmi er í spám greiningardeilda Landsbankans og Glitnis um gengisþróun á næsta ári. Greining Glitnis telur að krónan komi til með að veikjast en Landsbankinn býst frekar við að krónan styrkist. Í áliti Landsbankans er því haldið fram að þrýstingur verði á krónuna til hækkunar. Svo lengi sem vaxtamunur gagnvart útlöndum haldist hár og jákvæðar fréttir berist áfram af íslensku efnahagslífi séu líkur á hækkun á gengi krónunnar. Björn Rúnar Guðmundsson segist telja að ákveðinn viðsnúningur hafi orðið og að erlendir fjárfestar beri nú aukið traust til íslensks efnahagslífs. Slíkt hafi jákvæð áhrif á hlutabréfa-, skuldabréfa og gjaldeyrismarkaði. Björn telur að innlausn jöklabréfa síðar á árinu komi ekki til með að hafa veruleg áhrif á gengi krónunnar. "Jafnvel þótt eitthvað dragi saman verður vaxtamunurinn áfram mikill. Minni vaxtamunur þarf heldur ekki að þýða að fjárfestar flýi allir úr landi. Fjárfestar tjalda ekki til einnar nætur." Í Þjóðhagsspá greiningar Glitnis er því spáð að meðaltalsgildi gengisvísitölunnar verði kringum 130 á næsta ári og að krónan eigi því eftir að veikjast um sex prósent frá núgildi.
Viðskipti Mest lesið Ríkið gæti niðurgreitt losun flugfélaganna um þrjá milljarða Viðskipti innlent Konurnar ofþreyttar en karlmenn vilja meiri frið til að vinna Atvinnulíf Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Viðskipti erlent „Allir alltaf að segja að hann sé svo mjúkur“ Atvinnulíf Lokuðu Ítalíu á Frakkastíg eftir mótmæli Eflingar Viðskipti innlent Már nýr meðeigandi hjá Athygli Viðskipti innlent Oculis á mikilli siglingu og Kauphöllin iðagræn Viðskipti innlent Sjarminn af sérverslun lifi góðu lífi Viðskipti innlent Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Már nýr meðeigandi hjá Athygli Ríkið gæti niðurgreitt losun flugfélaganna um þrjá milljarða Oculis á mikilli siglingu og Kauphöllin iðagræn Lokuðu Ítalíu á Frakkastíg eftir mótmæli Eflingar Sjarminn af sérverslun lifi góðu lífi Alma til Pipars\TBWA Uppsagnir hjá Veitum Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Borgin fær milljarða fyrir síðasta þéttingarreit miðborgarinnar Bein útsending: Viðtöl við sérfræðinga um mannauðsmál Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Indó lækkar líka vexti Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Engar hópuppsagnir í september Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Sjá meira