Sport

Toshack ánægður með sína menn

NordcPhotos/GettyImages
John Toshack, landsliðsþjálfari Wales, hrósaði sínum mönnum fyrir góðan baráttuanda þegar liðið lagði Norður-Íra 3-2 í hörku leik í Belfast í dag, en Ryan Giggs skoraði sigurmark Wales úr aukaspyrnu eftir að þeir höfðu misst niður tveggja marka forystu sína. "Það sem mér fannst ánægjulegast var að við skyldum ná að vinna eftir að tapa niður tveggja marka forskoti í leiknum. Við reyndum að spila góða knattspyrnu við erfiðar aðstæður og mér fannst frábært að við næðum að skora þrjú mörk á útivelli," sagði Toshack, sem hrósaði vængmönnum sínum, Ryan Giggs og Simon Davies sérstaklega fyrir frammistöðu sína.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×