Sport

Helena áfram með KR

Helena Ólafsdóttir hefur verið ráðinn þjálfari KR í Landsbankadeild kvenna. Helena, sem er KR-ingur í húð og hár tekur við liðinu af Írisi Björk Eysteinsdóttur en Helena hafði leyst hana af í sumar eftir að Íris Björk þurfti að fara í barneingnarfrí. "Ein helsta forsenda þess að ég tók þetta starf að mér er sú að allir leikmenn sem eru fyrir verði áfram hjá félaginu og þá er það engin launung að það er vilji hjá okkur að styrkja liðið. Við lentum í fjórða sæti á síðustu leiktíð og við ætlum okkur að sjálfsögðu að gera betur," sagði Helena Ólafsdóttir sem áður hefur þjálfað lið Vals og kvennalandsliðið með ágætum árangri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×