Sport

Carsley aftur í aðgerð

Það blæs ekki byrlega fyrir botnlið Everton þessa dagana og í dag bárust þær fréttir að miðjumaðurinn sterki Lee Carsley hafi farið í aðra aðgerð á hné og verði því frá í lágmark sex vikur til viðbótar. Carsley fór í hnéuppskurð í sumar, en sló niður í æfingaleik með liðinu rétt áður en leiktíðin hófst. Hann hefur verið undir smásjánni hjá læknum síðan og þeir ákváðu að best væri að skera hann upp á ný til að lagfæra liðböndin í hnénu á honum, sem ekki höfðu jafnað sig eins og vonir stóðu til.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×