Sport

Greta fór á kostum

Markahrókurinn Greta Mjöl Samúelsdóttir fór á kostum í dag þegar íslenska U-19 ára landslið kvenna vann stórsigur á liði Bosníu og Hersegóvínu í undankeppni EM. Greta skoraði fjögur marka íslenska liðsins sem sigraði 5-0 og er komið áfram í milliriðla í keppninni. Katrín Ómarsdóttir skoraði eitt mark í leiknum. Rússar og Íslendingar eru því bæði með fullt hús stiga, en liðin mætast á laugardag. Rússneska liðið vann Georgíu í dag, vægast sagt sannfærandi, 21-0 og því ljóst að íslensku stúlknanna bíður erfitt verkefni um helgina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×