Sport

Liverpool staðfestir áhuga á Owen

Rick Parry, framkvæmdastjóri Liverpool, hefur staðfest að félagið hafi áhuga á að fá Michael Owen aftur á Anfield og segir málið væntanlega skýrast eftir helgina. "Ég er ekki viss um að ég geti gefið svar um það hvort Owen komi hingað eða ekki, það kemur ekki í ljós fyrr en eftir helgina, en ég get sagt að við erum alltaf upp með okkur þegar leikmenn láta í ljós áhuga sinn á að koma og spila með liðinu," sagði Parry.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×