Íslenskir forstjórar í 21. sæti 11. ágúst 2005 00:01
Það eru til forstjórar á Íslandi sem fá fleiri milljónir í laun á mánuði. Sjálfsagt finnst einhverjum það býsna gott. En íslenskir forstjórar eru ekki hálfdrættingar á við kollega sína í öðrum Evrópulöndum; verma 21. sætið yfir launahæstu forstjórana í álfunni. Mikið hefur verið rætt um ofurlaun íslenskra forstjóra að undanförnu. Í svissnesku riti sem fjallar um samkeppnishæfni í Evrópu kemur fram að íslenskir forstjórar eru númer 21 yfir launahæstu forstjórana en meðal laun þeirra hér á landi eru 565 þúsund krónur samkvæmt rannsókninni en fara þó upp í góðar tíu milljónir og hafa margir fussað yfir þeim tölum. Ofar á listanum eru meðal annars Danmörk og Noregur. Þó verður að taka tillit til þess að skattar eru afar mismunandi í þessum löndum og eru stórfyrirtækin hér á landi flest hver mun minni en gengur og gerist erlendis. Það lítur þó út fyrir að laun forstjóra hér á landi séu ekki út úr korti eins og talað hefur verið um, miðað við það sem gengur og gerist annars staðar, nema síður sé. Pétur Blöndal segir það hlutverk eigenda fyrirtækja að meta það hvort forstjórarnir séu með góð laun eða ekki. Þá sé það spurningin hvort hluthafarnir eða eigendur fyrirtækjanna fái þá stjórnun sem sé mun betri en ellla. Pétur segir laun stjórnenda hér á landi ekki óeðlileg. Stjórnun hafi verið mjög vanmetin á Íslandi og það enduspeglist í því að laun forstjóra hafi ekki verið mjög há hingað til enda hafi þeir ekki setið á völtum stólum. Hann telji þó að þetta sé að breytast, menn séu að átta sig á gildi góðrar stjórnunar fyrir allt fyrirtækið og aðra starfsmenn.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Konurnar ofþreyttar en karlmenn vilja meiri frið til að vinna Atvinnulíf „Allir alltaf að segja að hann sé svo mjúkur“ Atvinnulíf Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Viðskipti innlent „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Vaxtalækkun hænuskref í rétta átt en ekki megi gleyma nýlegum hækkunum Neytendur Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Borgin fær milljarða fyrir síðasta þéttingarreit miðborgarinnar Bein útsending: Viðtöl við sérfræðinga um mannauðsmál Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Indó lækkar líka vexti Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Engar hópuppsagnir í september Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Herferð í boði Ernu Hreins og Önnu Margrétar Hvíta húsið og Ennemm segja upp fólki Telur ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið Eirberg hættir með verslunina í Kringlunni í kjölfar brunans Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja lækkunina Lækkar stýrivextina í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 Ekki útilokað að stýrivextir lækki Sjá meira