Dómsmál
150 151 152 153 154 155 156 157 158 … 166 ›
Ók bíl undir áhrifum lyfja frá Reykjavík til Húnaþings vestra Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í dag karl til greiðslu 100 þúsund króna í sekt fyrir bílstuld, akstur undir áhrifum lyfja og fyrir vörslu fíkniefna. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa stolið bíl í Reykjavík snemma á árinu og ekið honum undir áhrifum örvandi og deyfandi lyfja eftir þjóðvegi eitt sem leið lá í Húnaþing vestra þar sem hann ók út af veginum. Innlent 14.12.2006 15:45
Dæmdar bætur vegna gæsluvarðhalds Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að íslenska ríkið skyldi greiða karlmanni 250 þúsund krónur í miskabætur vegna gæsluvarðhalds sem hann sætti í byrjun árs 2005, en hæstiréttur vísaði gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manninum frá dómi. Innlent 14.12.2006 14:29
Rúmenar teknir með fölsuð skilríki Tveir Rúmenar, karl og kona, voru í gær dæmd í Héraðsdómi Austurlands í þrjátíu daga fangelsi fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komuna til Íslands. Fólkið kom til Seyðisfjarðar með Norrænu í september en þau tóku ferjuna í Bergen í Noregi. Við komuna framvísuðu þau fölsuðum ítölskum persónuskilríkjum. Innlent 14.12.2006 10:49
Perúar dæmdir fyrir að smygla ullarpeysum Stórt uppboð verður haldið innan skamms hjá Sýslumanninum á Seyðisfirði þar sem boðnar verða upp um eitt þúsund ullarpeysur, prjónahattar, borðdúkar og fleira. Um er að ræða varning sem gerður var upptækur þegar tveir perúskir ríkisborgarar voru í gær dæmdir fyrir að koma ólölega með varninginn til landsins. Innlent 14.12.2006 10:38
Skilorðsbundið fangelsi og sekt fyrir skatta- og bókhaldsbrot Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 16 milljóna króna í sekt fyrir skattalaga-, bókhalds- og hegningarlagabrot í tengslum við eigin atvinnurekstur og við rekstur einkahlutafélags. Innlent 14.12.2006 10:08
Gat ekki varið sig sökum ölvunar Maður um tvítugt var í gær dæmdur í Héraðsdómi Austurlands í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Maðurinn réðst ásamt konu á þrítugsaldri á karlmann við heimahús á Höfn í Hornafirði í janúar á þessu ári. Innlent 14.12.2006 09:50
Unglingur sektaður fyrir líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt ungling til greiðslu 60 þúsund króna sektar í ríkissjóð og fórnarlambi sínu í líkamsárás samtals 130 þúsund krónur í miskabætur. Innlent 14.12.2006 09:44
Olíuforstjórar ákærðir Ríkissaksóknari hefur ákært einn núverandi og tvo fyrrverandi forstjóra olíufélaganna fyrir brot á samkeppnislögum og er ákæran upp á átján blaðsíður. Allt að fjögurra ára fangelsi getur legið við brotunum. Innlent 13.12.2006 18:21
Síbrotamaður fékk fimm ára fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Garðar Garðarson í fimm ára fangelsi fyrir ýmis brot. Maðurinn var dæmdur fyrir þjófnað, skjalafals, fjársvik, nytjastuld, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot. Maðurinn rauf með brotum sínum skilorð. Innlent 13.12.2006 16:02
Dæmdur nauðgari í gæsluvarðhald Edward Apeadu Koranteng karlmaður á þrítugsaldri, sem dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að nauðga fjórtán ára stúlku, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 20. desember. Við sögðum frá því í fréttum okkar í gær að maðurinn er grunaður um að hafa nauðgað þrettán ára stúlku í lok nóvember. Innlent 13.12.2006 15:16
Dómsuppsaga í málum gegn olíufélögunum Dómar verða kveðnir upp í málum Reykjavíkurborgar og Strætó bs. á hendur stóru olíufélögunum klukkan þrjú í dag. Innlent 13.12.2006 10:21
Þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga 14 ára stúlku Rúmlega tvítugur karlmaður, Edward Apeadu Koranteng, var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir nauðgun. Maðurinn nauðgaði stúlkunni sem er fjórtán ára í heimahúsi í september í fyrra. Stúlkunni var jafnframt dæmd um ein milljón króna í miskabætur. Innlent 12.12.2006 14:23
Báðust afsökunar á framferði sínu á vettvangi slyss Nokkrir vegfarendur höfðu samband við lögregluna í Reykjavík í gær og báðust afsökunar á framkomu sinni sl. sunnudag í kjölfar banaslyss á Vesturlandsvegi. Hinir sömu höfðu áður lýst yfir óánægju sinni með lokun vegarins og gerðu það bæði á vettvangi og símleiðis. Innlent 12.12.2006 13:22
Fangelsisdómur og há sekt fyrir skatta- og bókhaldsbrot Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í níu mánaða skilorðsbundið frangelsi og til greiðslu 29 milljón króna í sekt fyrir að hafa hvorki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum vegna atvinnustarfsemi sinnar fyrir árið 2004 né innheimtum virðisaukaskatti að fjárhæð rúmlega 14 milljónir króna. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að færa ekki lögboðið bókhald og varðveita bókhaldsgögn vegna sömu atvinnustarfsemi. Innlent 12.12.2006 12:39
Sýknaður af skaðabótakröfu vegna slyss Héraðsdómur Reykjaness sýknaði í dag húsasmíðameistara af ríflega 3,3 milljóna króna skaðabótakröfu byggingverkamanns sem slasaðist við störfum á vegum meistarans haustið 2001. Innlent 12.12.2006 10:06
Sakfelldir fyrir utanvegaakstur í Hlíðarfjalli Héraðsdómur Norðurlands eystra sakfelldi í dag tvo menn fyrir utanvegaakstur og sektaði annan þeirra um 25 þúsund krónur en frestaði ákvröðun um refsingu hins um tvö ár svo framarlega sem hann heldur skilorð. Innlent 11.12.2006 17:09
Fluttu inn 6,5 kíló af amfetamíni Réttað var yfir tveimur Litháum í Héraðsdómi Reykjavíkur dag en þeir fluttu samtals inn til landsins sex og hálft kíló af amfetamíni í lok sumars. Innlent 11.12.2006 14:30
Sýknaður af ákæru um líkamsárás á fyrrverandi unnustu Karlmaður var í dag sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um líkamsárás á fyrrverandi unnustu sína. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í október á síðasta ári ráðist á konuna á göngustíg í Víðidal í Reykjavík. Innlent 11.12.2006 11:58
Gæsluvarðhald staðfest vegna meintrar nauðgunar Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni á sextugsaldri sem grunaður eru um að hafa nauðgað konu síðastliðinn föstudag. Maðurinn verður í gæsluvarðhaldi til 20. desember og á að gangast undir geðrannsókn á þessum tíma. Innlent 8.12.2006 16:39
Yfirréttur í Englandi ógildir meiðyrðadóm gegn Hannesi Yfirréttur í Lundúnum ógilti í dag dóm sem felldur var sumarið 2005 í meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar athafnamanns á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor. Innlent 8.12.2006 15:05
Neitað um skaðabætur eftir að hafa ekið á hest Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað hestamann og Vátryggingafélag Íslands af ríflega 670 þúsund króna skaðabótakröfu manns vegna tjóns sem varð á bíl hans þegar hann ók á hest hestamannsins. Innlent 8.12.2006 13:17
Neytendasamtökin standa á bak við áfrýjun vegna olíusamráðsmáls Stjórn Neytendasamtakanna hefur tekið ákvörðun um að standa á bak við kæru Sigurðar Hreinssonar, húsasmiðs á Húsavík, til Hæstaréttar vegna frávísunar héraðsdóms á máli hans á hendur Keri hf., sem áður var Olíufélagið Esso. Innlent 8.12.2006 11:01
14 mánaða fangelsi fyrir amfetamínframleiðslu Hæstiréttur staðfesti í dag 14 mánaða fangelsisdóm héraðsdóms yfir manni fyrir að hafa í félagi við annan mann framleitt amfetamín. Innlent 7.12.2006 17:20
Eins og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Hæstiréttur hefur dæmt karlmann í eins og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart konu og til að greiða henni átta hundruð þúsund krónur í bætur. Innlent 7.12.2006 17:03
Sex ára fangelsi fyrir sveðjuárás Hæstiréttur staðfesti í dag sex ára fangelsisdóm yfir Tindi Jónssyni fyrir tilraun til manndráps með því að hafa ráðist að mann vopnaður sveðju og höggvið í höfuð hans og líkama. Innlent 7.12.2006 16:51
Fangelsi og sekt fyrir ölvunarakstur og ranga skýrslugjöf Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í eins mánaðar fangelsi og til greiðslu 250 þúsund króna fyrir ölvunarakstur og fyrir að framvísa ökuskírteini annars manns þegar lögreglan hafði afskipti af honum. Þá var hann jafnfram sviptur ökuréttindum í fimm ár. Innlent 7.12.2006 16:18
Mótmælendur fá skilorðsbundinn dóm Héraðdsdómur Austurlands hefur dæmt sex breska ríkisborgara í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og tvo Breta í eins mánaðar fangelsi fyrir að hafa ruðst í heimildarleysi inn á skrifstofu verkfræðistofunnar Hönnunar á Reyðarfirði í sumar og gert þar tilraun til að svipta starfsmenn frelsi sínu. Innlent 7.12.2006 11:10
Fær 23 milljónir vegna mistaka í brjóstastækkunaraðgerð Tveir læknar voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða konu rúmar tuttugu og þrjár milljónir króna í bætur vegna mistaka í aðgerð. Konan fór í brjóststækkunaraðgerð en á meðan á aðgerðinni stóð hætti hún að anda og fékk hjartastopp. Innlent 5.12.2006 15:56
Fékk snöru til að hengja sig með í jólagjöf Karlmaður um fertugt var í dag dæmdur í tveggja mánaða fangelsik í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að reyna að aka á fyrrverandi eiginkonu sína. Maðurinn reyndi tvívegis að aka á konuna. Konan fékk jólagjöf frá manninum um síðustu jól en í pakkanum var snara til að hengja sig með. Innlent 5.12.2006 11:19
Dæmdir fyrir peningafölsun Þrír karlmenn voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystara fyrir peningafölsun. Einn mannanna var einnig dæmdur fyrir þjófnað og annar fyrir vörslu fíkniefna. Þeir notuðu falsaðan fimm þúsund króna seðil í Bónusvídeó á Akureyri. Mennirnir eru á aldrinum sextán til tuttugu og eins árs. Innlent 4.12.2006 15:46