Fréttaskýringar
12 13 14 15 16 17 … 17 ›
Fólk á ekki skilið þau stjórnvöld sem það fær yfir sig Pólitískar línur eru í fullkomnu uppnámi. Hægri/vinstri kvarðarnir duga ekki lengur til að skilgreina hinar flokkspólitísku línur. Innlent 14.1.2015 15:49
Tífalt dýrara að bíða en framkvæma Þegar komið er að illa förnu landi vegna jarðvegs- og gróðureyðingar er endurheimt þess margfalt dýrari aðgerð en sú að koma í veg fyrir skaðann í tíma. Eyðingaröflin láta fátt ósnert, hvort sem það eru lífsskilyrði fugla eða fiskurinn í ánum. Þau hafa líka áhrif á veðurfarið. Innlent 22.12.2014 11:16
Ódýr aðgerð og skilar fljótt miklu Ísland sótti það fast á vettvangi Sameinuðu þjóðanna fyrir nokkrum árum að endurheimt votlendis væri tæk aðgerð til að standa við skuldbindingar í loftslagsmálum. Hér heima ríkti þögn um málið þó fjölmörg rök stæðu til annars. Málið virðist loks komið á dagskrá löggjafans. Innlent 18.12.2014 10:29
Tækifæri og stórborgarbragur með léttlestum í Reykjavík Sporvagnakerfi þar sem byggð á að þéttast í Reykjavík næstu áratugina getur stuðlað að dreifingu hótelrýmis í borginni, auk þess að stórborgarbragur verður til í ys og þys skiptistöðvanna. Gísli Rafn Guðmundsson borgarhönnuður segir að þar geti líka byggst upp margvísleg þjónusta. Hann teiknaði upp mögulega framtíðarsýn í lokaverkefni sínu í meistaranámi í arkítektúr við háskólann í Lundi í Svíþjóð. Viðskipti innlent 9.12.2014 21:05
Fátækt barna þrefaldast frá hruni Fátækt barna hefur aukist mest í þeim löndum sem urðu verst úti í efnahagshruninu 2008. Fátækt íslenskra barna fer úr 11 prósentum 2008 í 32 prósent 2012 samkvæmt tölum UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Innlent 3.12.2014 21:44
Mismunað í námi vegna fjárskorts Föngum er mismunað hvað varðar lögbundinn rétt þeirra til náms eftir því hvar þeir afplána og niðurskurður í námsráðgjöf hefur slæm áhrif á árangur þeirra í námi. Innlent 2.12.2014 21:53
Ný skuldakreppa í kjölfar olíuverðfalls Verð á hráolíu hefur ekki verið lægra í fjögur ár og hefur lækkað í nær átta vikur samfleytt. Olíugeirinn logar af samsæriskenningum um ástæður lægra verðs. Verðið leggst þungt á skuldsettan olíuiðnað í Bandaríkjunum, en verður líklega lágt áfram. Viðskipti erlent 19.11.2014 21:43
Lendingar á „neyðarbraut“ rúmt hálft prósent af öllum lendingum Síðustu ár jafngilda lendingar á NA/SV-braut Reykjavíkurflugvallar að jafnaði 0,62 prósentum heildarfjölda lendinga. Ekki liggur fyrir skipting lendinganna milli neyðar- og/eða áætlunarflugs og annarrar umferðar. Innlent 16.11.2014 21:58
Hvernig virkar eldflaugakerfið sem skaut niður flug MH17? Sönnunargögnin hrannast upp um óbeina aðild Rússa að því þegar farþegaþota Malaysian Airlines var skotin niður yfir Úkraínu. Til er hljóðupptaka af samtali leiðtoga aðskilnaðarsinna og rússnesks embættismanns sem bendlar málið við Rússa. Þotan var skotin niður með tæknilega fullkomnu eldflugakerfi. Innlent 19.7.2014 20:51
Spjótin beinast nú að Rússlandi Bandaríkjaforseti segir ábyrgð Rússa mikla á að ekki hafi tekist að koma á friði í Úkraínu. Kallar eftir ákveðnum skrefum í friðarátt og boðar samráð þjóðarleiðtoga um næstu skref. Úkraínumenn segja aðskilnaðarsinna studda af Rússum ábyrga fyrir árásinni. Erlent 18.7.2014 22:02
Aðildarviðræður gætu hafist á ný Sendiráð ESB á Íslandi áréttar að framkvæmdastjórn ESB sé reiðubúin að hefja á ný aðildarviðræður við Ísland, komi um það ósk héðan. Nýr forseti framkvæmdastjórnarinnar segir ný ríki ekki bætast við næstu fimm ár. Innlent 17.7.2014 22:57
Þungamiðja flugumferðar í heiminum færist til Asíu Airbus segir horfur á því að vöxtur á flugumferð verði áfram sá sami og verið hefur síðustu áratugi, tvöföldun á hverjum fimmtán árum. Á Innovation Days í Toulouse voru kynntar horfur og helstu nýjungar hjá flugvélarisanum. Blaðamenn fengu að fara í tilraunaflug í flottustu þotu heims. Viðskipti innlent 24.6.2014 16:35
Vilja grisja frumskóg tolla og vörugjalda Ólukkuhjól Loka Verndalt verður kynnt til sögunnar í dag á hádegisfundi Samtaka atvinnurekenda. Fundurinn er liður í viðleytni til að fá tollakerfið einfaldað og vörugjöld afnumin. Ógagnsætt kerfi og mörgum óskiljanlegt, segir framkvæmdastjóri SA. Viðskipti innlent 17.6.2014 17:48
Gamlir leiðtogar Sjálfstæðisflokks standa með Framsókn Framsóknarflokkurinn hefur átt sviðið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Vaxandi gremja er meðal sjálfstæðismanna með stöðuna og þróun mála, en fyrrverandi forystumenn flokksins í borgarstjórn gagnrýna nú félaga sína og taka upp hanskann fyrir Framsókn. Innlent 30.5.2014 13:17
Enn þegir Sigmundur Davíð Vaxandi óþol er gagnvart því að forysta Framsóknarflokksins taki ekki afgerandi um afstöðu til mjög svo umdeildrar afstöðu oddvita flokksins í Reykjavík sem túlkuð hefur verið sem andúð í garð innflytjenda. Innlent 28.5.2014 13:51
Framsókn prufukeyrir andúð á innflytjendum Síðasta útspilinu, því eina sem hefur greint Framsóknarflokkinn frá þjóðernispopúlisma, hefur nú verið spilað út. Innlent 26.5.2014 11:28
Ísland héldi yfirráðum yfir sjávarútvegi sínum Framkvæmdastjóri LÍÚ segir að hefði Ísland verið í ESB hefði landið aldrei fengið makrílkvóta. Sérfræðingur sendinefndar ESB bendir á að með aðild myndi veiðiréttur haldast ef makríllinn hyrfi burt á ný. Hér væri stjórnsýsla í sjávarútvegi til fyrirmyndar. Viðskipti innlent 22.5.2014 18:35
Heimilin sögð búa við ólíðandi kostnað af úreltu landbúnaðarkerfi Verðhækkun nautakjöts frá 2010 hækkaði verðtryggðar skuldir um 900 milljónir. Kjötskortur hefur þrýst á enn meiri verðhækkanir. SVÞ vill bregðast við með frjálsum og tollalausum innflutningi nautakjöts. Búist er við synjun. Viðskipti innlent 20.5.2014 20:40
Fjárfestingarumhverfið ræður miklu um afnám hafta Draga þarf verulega úr hömlum á beina erlenda fjárfestingu eigi að vera hægt að aflétta gjaldeyrishöftum án þess að hrapallega takist til. Ísland er meðal þeirra landa þar sem hömlur á erlenda fjárfestingu eru mestar. Viðskipti innlent 13.5.2014 18:24
Sveifla utan áhrifavalds stjórnmála Reykjavíkurborg skilaði 8,4 milljarða króna afgangi 2013. Þróun sem dró úr ætluðum lífeyrisskuldbindingum og endurmat eigna Félagsbústaða hjálpaði til. Að þeim þáttum frádregnum er hagnaður samt 4,1 milljarður. Viðskipti innlent 30.4.2014 18:18
Þeir fái lyfin sem hafa af þeim gagn Landlæknir segir heilsugæsluna þurfa að koma sterka inn með þverfagleg teymi til að sinna málum þar sem vísað er á lyf við ofvirkni og athyglisbresti. Hér kunni heilbrigðisþjónusta að sinna þeim vel sem þurfa á slíkum lyfjum að halda en taka þurfi á skuggahliðum misnotkunar. Innlent 23.4.2014 20:34
Tekjur í fjarskiptageira námu 50 milljörðum króna í fyrra Nova er í yfirburðastöðu þegar kemur að fyrirframgreiddum farsímakortum (frelsi). Gagnaflutningar yfir farsímanet hafa stóraukist. Þar eru notendur Nova fremstir og hafa fjórfaldað gagnamagnið milli 2012 og 2013. Aukið og hraðara gagnastreymi ýtir á eftir fjárfestingu í fjarskiptakerfunum. Viðskipti innlent 15.4.2014 18:31
Loku ekki skotið fyrir sameiningu enn að mati rektors Menntamálaráðuneytið hefur ekki enn skrifað upp á niðurskurðaráform sem lögð voru fram í nýrri fjárhagsáætlun Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri um mánaðamótin. Gæti þýtt að sameining við Háskólann sé enn á borðinu, segir rektor. Innlent 15.4.2014 08:44
Rannsókn beint að flugmönnunum Engin skýring hefur enn fengist á hvarfi malasísku farþegaþotunnar en leitarsvæðið er orðið gríðarstórt. Erlent 17.3.2014 11:55
Segir alþjóðasamfélagið getulaust Þrjú ár eru frá því að átök í Sýrlandi hófust eftir að hópur unglinga var handtekinn. Talið er að um 140 þúsund manns hafi látist. Framkvæmdastjóri Sanmeinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, hvetur Rússa og Bandaríkjamenn til að setja aukinn kraft í friðarviðræður. Erlent 14.3.2014 17:25
Meirihluti bílaflota slökkviliðanna í flokki fornbíla Bílafloti slökkviliðanna er að stórum hluta kominn til ára sinna, og fellur undir skilgreiningar um fornbíla. Þjálfun er ekki sinnt eins og þörf krefur. Sameining slökkviliða er aðeins tímaspursmál, enda þarf að mæta kalli tímans til að uppfylla sívaxandi kröfur. Innlent 12.3.2014 17:59
Norðmenn slógu á sáttahönd ESB í makríldeilunni Evrópusambandið lagði fram málamiðlun í makríldeilunni sem Ísland og Færeyjar samþykktu. Norðmenn höfnuðu leið ESB. Sögulegt tækifæri til sátta í makríldeilunni er runnið mönnum úr greipum, er almennur skilningur á viðræðuslitum í Skotlandi á miðvikudag. Innlent 6.3.2014 16:28
Stjórnarskrá stöðvar ekki þjóðaratkvæði Sigurður Líndal lagaprófessor er ósammála forsætisráðherra og segir vel hægt að halda bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Björg Thorarensen lagaprófessor segir þetta ekki geta átt við um þingsályktun. Innlent 6.3.2014 10:05
Strandsiglingar spara fyrirtækjum stórfé Stóru skipafélögin fluttu 85.000 tonn af varningi frá fjórum höfnum á fyrstu níu mánuðum strandsiglinga í fyrra. Fyrirtæki á landsbyggðinni spara um milljarð á ári í flutningskostnað. Keyrsla flutningabíla á afmörkuðum vegarkafla minnkar um 3,2 milljónir kílómetra. Viðskipti innlent 28.2.2014 16:39
Gjaldtaka stangast ekki á við ferðafrelsi almennings Áform um gjaldtöku á ferðamannastöðum mæta harðri andstöðu þeirra sem vilja áfram óhindrað aðgengi almennings um óræktað land. Lagaprófessor segir að þó meginreglan sé óheft aðgengi geti landeigendur verið í rétti innheimti þeir gjald til að standa straum af kostnaði. Innlent 26.2.2014 17:02