Körfubolti
177 178 179 180 181 182 183 184 185 … 219 ›
Chris Paul nýliði ársins Bandaríska dagblaðið Times-Picayune hefur eftir heimildarmanni sínum í NBA deildinni að leikstjórnandinn Chris Paul hjá New Orleans Hornets verði útnefndur nýliði ársins í deildinni á miðvikudaginn. Þessar fréttir hafa enn ekki verið staðfestar, en reynist þær réttar, koma þær sannarlega ekki á óvart. Paul bar höfuð og herðar yfir aðra nýliða í deildinni í vetur og líklega yrði það að teljast hneyksli ef annar maður hlyti nafnbótina. Sport 8.5.2006 21:56
Wallace varnarmaður ársins Ben Wallace, miðherji Detroit Pistons, hefur verið kjörinn varnarmaður ársins í fjórða sinn á ferlinum. Wallace er aðeins annar leikmaðurinn í sögu NBA deildarinnar til að hljóta þessa nafnbót fjórum sinnum á ferlinum. Sport 8.5.2006 19:11
Varnarleikur meistaranna gerði útslagið San Antonio hafði ekki nema einn og hálfan sólarhring til að jafna sig eftir viðureign sína við Sacramento í fyrstu umferðinni áður en liðið sneri aftur heim og tók á móti Dallasí fyrsta leik annarar umferðarinnar í Vesturdeildinni. Meistararnir skelltu í lás í vörninni á lokasprettinum í hnífjöfnum leik og höfðu sigur 87-85. Sport 8.5.2006 01:26
Detroit lék sér að Cleveland Það rigndi þriggja stiga körfum í Detroit í gærkvöldi þegar LeBron James og félagar mættu þangað í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA. Detroit hitti úr 10 af 11 þriggja stiga skotum sínum í fyrri hálfleik og lagði grunninn að auðveldum 113-86 sigri sínum. LeBron James skoraði öll 22 stig sín í fyrri hálfleiknum og sá aldrei til sólar frekar en aðrir félagar hans hjá Cleveland. Sport 8.5.2006 01:02
Nash verðmætasti leikmaðurinn Kanadíski leikstjórnandinn Steve Nash hjá Phoenix Suns var um helgina kjörinn verðmætasti leikmaður NBA deildarinnar annað árið í röð, en fréttir þess efnis höfðu reyndar lekið út fyrir nokkru síðan eins og greint var frá hér á Vísi. Sport 8.5.2006 00:37
Phoenix sló út Lakers Phoenix Suns tryggði sér í nótt, gegn öllum líkum, farseðilinn í aðra umferð úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta þegar liðið vann stórsigur á L.A. Lakers, 121-90. Þetta var sjöundi leikurinn í rimmu liðanna sem endaði 4-3 fyrir Suns sem vann þrjá síðustu leikina og varð aðeins áttunda liðið í sögu NBA til þess að komast áfram eftir að hafa lent 1-3 undir. Sport 7.5.2006 12:45
San Antonio og Cleveland áfram San Antonio Spurs og Cleveland komust í gærkvöldi í aðra umferð úrslitakeppninnar í NBA körfuboltanum. Oddaleikur Phoenix Suns og Los Angeles Lakers verður sýndur á Sýn extra klukkan eitt í nótt. Sport 6.5.2006 12:59
Phoenix og LA Lakers í oddaleik Leikmenn Phoenix Suns sýndu svo sannarlega úr hverju þeir eru gerðir í nótt þegar liðið lagði Los Angeles Lakers 126-118 á útivelli í frábærum framlengdum leik í fyrstu umferð úrslitakeppni Vesturdeildarinnar. Staðan í einvíginu er fyrir vikið orðin jöfn 3-3 og því verður hreinn úrslitaleikur í Phoenix á laugardagskvöldið. Sport 5.5.2006 06:47
Shaq er áttunda undur veraldar Shaquille O´Neal valdi sér góðan tíma til að vakna til lífsins með liði sínu Miami Heat í nótt þegar liðið sló Chicago út í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Austurdeildinni með 113-96 sigri á útivelli í sjötta leik liðanna. O´Neal skoraði 30 stig og hirti 20 fráköst í nótt og var líkari sjálfum sér eftir afleita frammistöðu í síðustu leikjum. Sport 5.5.2006 06:13
New Jersey mætir Detroit New Jersey Nets er komið í aðra umferð úrslitakeppninnar í Austurdeildinni eftir 96-90 baráttusigur á meiðslum hrjáðu liði Indiana Pacers í sjötta leik liðanna í nótt og vann því einvígið 4-2. New Jersey mætir Miami í næstu umferð. Sport 5.5.2006 05:59
Lakers - Suns í beinni Sjötti leikur Los Angeles Lakers og Phoenix Suns verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV í Digital Ísland klukkan 2:30 í nótt. Lakers getur komist áfram í aðra umferð úrslitakeppni Vesturdeildarinnar með sigri og hefur yfir 3-2 í einvíginu. Phoenix-liðið verður án síns besta varnarmanns í leiknum í kvöld eftir að Raja Bell fékk eins leiks bann fyrir gróft brot á Kobe Bryant í síðasta leik. Sport 4.5.2006 18:08
Ég ber enga virðingu fyrir Kobe Bryant Varnarmaðurinn sterki Raja Bell hjá Phoenix Suns var í gærkvöld dæmdur í eins leiks bann fyrir óíþróttamannslega villu á Kobe Bryant í fimmta leik LA Lakers og Phoenix í fyrrakvöld og ljóst að þessi tíðindi eru liði Phoenix gríðarlegt áfall fyrir sjötta leikinn í Los Angeles, sem sýndur verður beint á NBA TV í nótt. Sport 4.5.2006 14:55
Detroit valtaði yfir Milwaukee Detroit Pistons varð í kvöld fyrsta liðið til að komast áfram í úrslitakeppni Austurdeildarinnar þegar liðið valtaði yfir Milwaukee Bucks á heimavelli sínum 122-93 og vann því einvígið nokkuð sannfærandi 4-1. Rip Hamilton fór á kostum í liði Detroit og skoraði 40 stig þó hann hefði aðeins spilað þrjá leikhluta. Sport 4.5.2006 05:10
LeBron James kláraði Washington aftur Undrabarnið LeBron James heldur uppteknum hætti í sinni fyrstu heimsókn á stóra sviðið í úrslitakeppni NBA, en í nótt skoraði hann aðra sigurkörfu sína á nokkrum dögum þegar Cleveland lagði Washington 121-120 í æsilegum framlengdum leik og náði forystu 3-2 í einvígi liðanna. James skoraði 45 stig fyrir Cleveland og Gilbert Arenas skoraði 44 fyrir Washington. Sport 4.5.2006 04:34
Detroit - Milwaukee í beinni á besta tíma Detroit Pistons getur í kvöld slegið Milwaukee Bucks út úr fyrstu umferðinni í úrslitakeppni Austurdeildarinnar í NBA þegar liðin mætast í fimmta sinn á heimavelli Detroit. Staðan er 3-1 fyrir Detroit og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á besta tíma - eða klukkan 22 í kvöld. Sport 3.5.2006 19:09
Brown sakaður um nauðgun Miðherjinn Kwame Brown hjá LA Lakers hefur verið ásakaður um nauðgun skömmu eftir þriðja leik liðsins við Phoenix í Los Angeles á dögunum. Brown gaf strax út yfirlýsingu þar sem hann lýsir yfir sakleysi sínu, en leikmaðurinn hefur enn ekki verið formlega ákærður. Phil Jackson ákvað að leyfa Brown að spila í nótt þrátt fyrir að óttast að leikmaðurinn yrði annars hugar vegna málsins. Sport 3.5.2006 14:57
Heitt í kolunum í Phoenix LA Lakers tókst ekki að slá Phoenix Suns út úr úrslitakeppni Vesturdeildarinnar í nótt þegar liðið tapaði 114- 97 í fimmta leik liðanna í Phoenix og því er staðan orðin 3-2 fyrir Lakers. Mikill hiti var í leiknum í gær og voru þeir Kobe Bryant og Raja Bell báðir sendir í bað af dómurunum. Bryant skoraði 29 stig fyrir Lakers, en Boris Diaw átti frábæran leik hjá Phoenix með 25 stig, 10 fráköst og 9 stoðsendingar. Sport 3.5.2006 06:07
Meistararnir mörðu Sacramento Meistarar San Antonio þurftu á öllu sínu besta að halda í nótt þegar liðið lagði Sacramento 109-98 á heimavelli sínum í fimmta leik liðanna í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar. Bonzi Wells fór aftur á kostum í liði Sacramento og skoraði 38 stig og hirti 12 fráköst, en þrátt fyrir hetjulega baráttu komst liðið ekki í gegn um meistarana að þessu sinni. San Antonio getur nú klárað dæmið í sjötta leiknum í Sacramento. Sport 3.5.2006 05:20
Wade kláraði Chicago þrátt fyrir meiðsli Dwayne Wade tók til sinna ráða á lokasprettinum í fimmta leik Miami og Chicago í nótt og tryggði heimamönnum 92-78 sigur, þrátt fyrir að þurfa að fara meiddur af velli eftir ljóta byltu í fyrri hálfleik. Wade var sprautaður með verkjalyfum og sneri aftur til leiksins eftir að Shaquille O´Neal hafði sent eftir honum. Sport 3.5.2006 04:45
Stórleikur Vince Carter tryggði Nets sigurinn New Jersey Nets náði í nótt 3-2 forystu í einvígi sínu við Indiana Pacers í fyrstu umferð úrslitakeppni Austurdeildarinnar í NBA. Það var ekki síst fyrir stórleik Vince Carter sem heimamenn í New Jersey náðu að knýja fram nauman 92-86 sigur, en Carter skoraði 34 stig og hirti 15 fráköst. Jason Kidd setti félagsmet með 15 stoðsendingum. Jermaine O´Neal var stigahæstur í liði Indiana með 19 stig þrátt fyrir að eiga við meiðsli að stríða. Sport 3.5.2006 04:30
Ráðast örlög Phoenix Suns í nótt? Hann verður ekki af verri endanum sjónvarpsleikurinn á NBA TV í nótt þegar Phoenix Suns tekur á móti Los Angeles Lakers í fyrstu umferð úrslitakeppni Vesturdeildarinnar í NBA. Lakers getur með sigri í kvöld slegið Phoenix út og komist mjög óvænt í aðra umferð keppninnar, þar sem liðið mætir þá grönnum sínum í LA Clippers. Það yrði fyrsta einvígi grannliðanna í úrslitakeppni sögu NBA. Bein útsending frá leiknum hefst klukkan 2:30 eftir miðnætti. Sport 2.5.2006 15:00
Eignuðust dætur með 6 mínútna millibili Fyrrum samherjarnir hjá Los Angeles Lakers, þeir Shaquille O´Neal og Kobe Bryant, höfðu góða ástæðu til að fagna í gærmorgun þegar þeir eignuðust báðir dætur með aðeins 6 mínútna millibili. Þeir félagar sættust í vetur eftir að hafa ekki talast við í meira en eitt ár, þar sem þeir tókust á í fjölmiðlum og kölluðu hver annan öllum illum nöfnum. Sport 2.5.2006 13:38
Diaw tók mestum framförum Hinn fjölhæfi Boris Diaw hjá Phoenix Suns var í gærkvöldi kjörinn framfarakóngur ársins í NBA deildinni. Diaw, sem er franskur landsliðsmaður, kom til Phoenix frá Atlanta sem uppfyllingarefni í skiptum fyrir Joe Johnson síðasta sumar og fáa óraði fyrir því hve vel hann átti eftir að smella inn í leik liðsins. Sport 2.5.2006 12:38
Clippers áfram í fyrsta sinn í 30 ár Los Angeles Clippers gekk í gær frá Denver Nuggets 101-83 og vann einvígi liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni Vesturdeildarinnar auðveldlega 4-1. Þetta er í fyrsta sinn í yfir þrjá áratugi sem félagið vinnur seríu í úrslitakeppni. Þá kláraði Dallas dæmið gegn Memphis og Detroit komst í vænlega stöðu gegn Milwaukee. Sport 2.5.2006 11:10
Tekst Dallas að klára dæmið? Fjórði leikur Memphis Grizzlies og Dallas Mavericks verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV klukkan tólf á miðnætti í kvöld. Þar ræðst hvort Memphis nær að halda lífi í einvíginu eða lætur sópa sér út úr úrslitakeppninni í þriðja sinn í röð. Dallas hefur yfir 3-0 í einvíginu og hefur tapað 11 fyrstu leikjum sinni í úrslitakeppni í sögu félagsins, sem er NBA met. Sport 1.5.2006 21:36
Sacramento burstaði meistarana Dramatíkin í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA í vor er að verða ótrúleg og í lokaleik gærkvöldsins gerði lið Sacramento sér lítið fyrir og rótburstaði meistara San Antonio 102-84 og jafnaði metin í einvígi efsta og neðsta liðsins í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar í 2-2. Sport 1.5.2006 05:10
Kobe Bryant skaut Phoenix upp að vegg Kobe Bryant sýndi sannarlega úr hverju hann var gerður í gærkvöldi þegar hann tryggði Los Angeles Lakers 99-98 sigur á Phoenix Suns með ótrúlegri sigurkörfu í framlengingu og nú vantar Lakers aðeins einn sigur til að slá Phoenix út úr keppninni í fyrstu umferð úrslitakeppni Vesturdeildarinnar. Bryant var stórkostlegur á lokasprettinum á meðan verðmætasti leikmaður deildarinnar, Steve Nash, gerði afdrifarík mistök sem kostuðu Phoenix sigurinn. Sport 1.5.2006 04:49
Arenas kláraði Cleveland Gilbert Arenas skoraði 20 af 34 stigum sínum í fjórða leikhlutanum í gærkvöldi þegar lið hans Washington jafnaði metin gegn Cleveland í 2-2 með góðum 106-96 sigri í fjórða leik liðanna sem sýndur var í beinni útsendingu á NBA TV. LeBron James endurskrifaði metabækurnar hjá Cleveland í fyrri hálfleik, en þurfti að sætta sig við tap þrátt fyrir að skora 38 stig. Sport 1.5.2006 04:23
Miami í vandræðum Chicago Bulls afrekaði það í gær að jafna metin í einvígi sínu við Miami Heat í 2-2 með góðum 93-87 sigri á heimavelli sínum í fjórða leik liðanna. Flestir bjuggust við að það yrði aðeins formsatriði fyrir Miami að afgreiða liðið í sjöunda sæti í Austurdeildinni, en baráttuglaðir leikmenn Chicago eru langt í frá búnir að segja sitt síðasta gegn hærra skrifuðum andstæðingum sínum. Sport 1.5.2006 04:00
Washington - Cleveland í beinni á NBA TV Úrslitakeppni NBA heldur áfram á fullu í kvöld og klukkan 23:30 verður á dagskrá NBA TV fjórði leikur Washington Wizards og Cleveland Cavaliers. Cleveland hefur yfir 2-1 í einvíginu, en leikur kvöldsins fer fram í höfuðborginni Washington. Forvitnilegt verður að sjá hvernig liði Washington tekst að ráða við undrabarnið LeBron James, sem skoraði 41 stig og tryggði Cleveland sigur í síðasta leik. Sport 30.4.2006 22:06