Körfubolti
169 170 171 172 173 174 175 176 177 … 219 ›
Cleveland - Minnesota í beinni í nótt Leikur Cleveland Cavaliers og Minnesota Timberwolves verður sýndur beint á NBA TV á Fjölvarpinu í kvöld og hefst klukkan hálf eitt eftir miðnætti. Cleveland er í efsta sæti Austurdeildarinnar og hefur farið ágætlega af stað, en Minnesota er í miklu basli í Vesturdeildinni og á von á erfiðum leik gegn LeBron James og félögum. Körfubolti 17.11.2006 21:37
Webber ósáttur við hlutskipti sitt Framherjinn Chris Webber hjá Philadelphia 76ers hefur farið fram á fund með eiganda liðsins og lýst yfir óánægju sinni með það hvað hann fær lítið að spila. Webber skoraði aðeins 6 stig á 23 mínútum í síðasta leik með liði sínu. Körfubolti 17.11.2006 15:51
Houston lagði Chicago Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Golden State vann góðan sigur á Sacramento og Houston skellti Chicago á heimavelli þrátt fyrir að glutra enn og aftur niður góðu forskoti í lokin. Körfubolti 17.11.2006 13:48
Iverson greiðir fyrir útför látins stuðningsmanns Allen Iverson, leikmaður Philadelphia 76ers í NBA deildinni, hefur boðist til að greiða fyrir útför 22 ára gamals drengs frá Philadelphia sem lést í gær, þremur árum eftir að hann varð fyrir skotárás í borginni. Körfubolti 16.11.2006 21:10
Golden State - Sacramento í beinni Aðeins tveir leikir fara fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Houston tekur á móti Chicago og þá eigast við Kaliforníuliðin Golden State Warriors og Sacramento Kings, en sá leikur verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni NBA TV á Fjölvarpinu og hefst klukkan 3:30 í nótt. Körfubolti 16.11.2006 22:33
Kenyon Martin úr leik Framherjinn Kenyon Martin verður ekki meira með liði sínu Denver Nuggets á tímabilinu eftir að í ljós kom að hnémeiðsli hans voru mun alvarlegri en talið var í fyrstu. Martin fór í minniháttar uppskurð í gær sem áætlað var að héldi honum frá keppni í um tvo mánuði, en þá kom í ljós að meiðslin voru mun alvarlegri en talið var. Körfubolti 16.11.2006 16:27
Charlotte lagði San Antonio Mjög óvænt úrslit urðu í NBA deildinni í nótt þegar lið Charlotte Bobcats vann annan sigur sinn á leiktíðinni á útivelli gegn San Antonio Spurs eftir framlengingu 95-92. Þetta var annað tap San Antonio á leiktíðinni og hafa bæði töpin komið á heimavelli liðsins. Tony Parker skoraði 25 stig fyrir San Antonio en nýliðinn Adam Morrison skoraði 27 fyrir Charlotte. Körfubolti 16.11.2006 14:39
Orlando - Denver í beinni á miðnætti Leikur Orlando Magic og Denver Nuggets verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld. Hér er um að ræða mjög forvitnilegan leik fyrir margra hluta sakir, því Denver hefur ekki landað sigri í Orlando síðan í mars 1992. Körfubolti 15.11.2006 19:34
Óvænt gengi Utah Jazz heldur áfram Utah Jazz er með besta árangur allra liða í NBA deildinni eftir að liðið lagði LA Clippers 112-90 á heimavelli sínum í nótt. Utah hefur unnið 7 leiki og tapað 1, en lið Clippers hafði unnið 5 leiki í röð áður en það lá í Salt Lake City í nótt. Körfubolti 15.11.2006 13:36
Golden State - Toronto í beinni Leikur Golden State Warriors og Toronto Raptors verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í nótt klukkan 3:30. Golden State hefur byrjað ágætlega undir stjórn Don Nelson, en hjá Toronto er fjölmenn sveit Evrópubúa enn að slípa sig inn í NBA deildina. Körfubolti 14.11.2006 19:31
Enn tapa New York og Boston Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og unnust þeir allir á útivöllum. Cleveland lagði New York í Madison Square Garden, Seattle vann óvæntan sigur á New Jersey og Orlando skellti Boston. Körfubolti 14.11.2006 14:39
New York - Cleveland í beinni í nótt Leikur New York Knicks og Cleveland Cavaliers verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld klukkan hálf eitt eftir miðnætti. Mikil ólga er í herbúðum New York líkt og í fyrra og pressan mikil á Isiah Thomas þjálfara, en Cleveland hefur verið í vandræðum með lakari lið deildarinnar það sem af er leiktíðinni. Hægt er að nálgast dagskránna á NBA TV á heimasíðu Sýnar. Körfubolti 13.11.2006 16:30
Fimmti sigur LA Clippers í röð LA Clippers vann í nótt fimmta leik sinn í röð eftir tap í fyrsta leiknum þegar liðið skellti New Orleans 92-76 á heimavelli sínum. Þetta var þriðja tap New Orleans í röð, en liðið vann fjóra fyrstu leiki sína í upphafi leiktíðar. Körfubolti 13.11.2006 05:21
LA Lakers - Memphis í beinni Leikur LA Lakers og Memphis Grizzlies verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Digital Ísland í kvöld klukkan 2:30. Kobe Bryant er nú kominn á fullt með liði Lakers á ný eftir meiðsli, en hefur þó haft mjög hægt um sig í stigaskorun í síðustu leikjum. Körfubolti 12.11.2006 21:47
57 stig Michael Redd dugðu skammt Skotbakvörðurinn Michael Redd skráði nafn sitt í sögubækurnar hjá liði sínu Milwaukee Bucks í nótt þegar hann sló félagsmet Kareem Abdul-Jabbar með því að skora 57 stig gegn Utah Jazz. Það dugði þó ekki til og gestirnir frá Utah höfðu 113-111 sigur og urðu fyrsta liðið til að vinna 6 leiki í vetur. Körfubolti 12.11.2006 14:33
Chicago - Indiana í beinni Það má búast við hörkuleik í nótt þegar Chicago Bulls og Indiana Pacers eigast við í NBA deildinni í leik sem sýndur verður beint á NBA TV sjónvarpssstöðinni klukkan 1:30. Chicago hefur ekki náð að fylgja eftir stórsigri sínum á Miami í fyrsta leik tímabilsins og þarf að eiga góðan leik til að leggja Indiana sem hefur unnið þrjá af fjórum síðustu leikjum sínum. Körfubolti 11.11.2006 21:55
Portland og Atlanta koma á óvart Tíu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og ekki er hægt að segja annað en að deildarkeppnin fari forvitnilega af stað, því á meðan nokkur af bestu liðum deildarinnar hafa átt erfitt uppdráttar í byrjun - eru minni spámenn á borð við Portland og Atlanta að koma á óvart. Körfubolti 11.11.2006 15:14
New Jersey - Miami í beinni á Sýn í kvöld Sjónvarpsstöðin Sýn heldur í kvöld áfram að sýna beint frá NBA körfuboltanum en klukkan eitt eftir miðnætti verður á dagskrá leikur New Jersey Nets og meistara Miami Heat. Körfubolti 10.11.2006 18:45
Fær rúman milljarð New York Knicks hefur samþykkt að greiða Larry Brown 1258 milljónir þar sem félagið rak hann þegar Brown áttui fjögur ár eftir af samningi sínum við félagið. Körfubolti 9.11.2006 20:09
Loksins sigur hjá Dallas Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt en þar bar hæst viðureign Phoenix Suns og Dallas Mavericks. Báðum liðum hefur gengið afleitlega í upphafi leiktíðar en svo fór að lokum að Dallas nældi í fyrsta sigur sinn eftir fjögur töp í röð. Körfubolti 10.11.2006 06:50
Stórleikur í beinni í nótt Það verður sannkallaður risaleikur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Digital Ísland í kvöld þegar tvö af stórliðum Vesturdeildarinnar etja kappi. Phoenix tekur þar á móti Dallas Mavericks, en þessi frábæru lið hafa hikstað verulega í byrjun tímabils og því verður allt undir í kvöld. Körfubolti 9.11.2006 21:17
Kenyon Martin þarf í uppskurð Meiðslavandræði Denver Nuggets í NBA deildinni virðast engan endi ætla að taka og í gær kom í ljós að framherjinn Kenyon Martin þarf enn og aftur í uppskurð á hné og óvíst er hvenær hann getur snúið aftur til keppni. Martin fór í uppskurð á vinstra hné fyrir rúmu ári, en að þessu sinni er það hægra hnéð sem gaf sig. Körfubolti 9.11.2006 15:17
Stórleikur Oberto tryggði San Antonio sigur Argentínumaðurinn Fabricio Oberto átti stórleik í nótt þegar San Antonio lagði Phoenix 111-106 eftir framlengdan leik í San Antonio. Oberto skoraði 22 stig, hirti 10 fráköst og hitti úr öllum 11 skotum sínum í leiknum. Dallas er enn án sigurs eftir tap gegn LA Clippers. Körfubolti 9.11.2006 14:53
Sacramento - Detroit í beinni Leikur Sacramento Kings og Detroit Pistons verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf fjögur í nótt. Þarna eru á ferðinni tvö af sterkari liðum deildarinnar og því kjörið fyrir nátthrafna að stilla á NBA TV í nótt. Körfubolti 8.11.2006 23:59
Carmelo Anthony gaf Syracuse 200 milljónir Framherjinn Carmelo Antony hjá Denver Nuggets gaf í gær gamla háskólanum sínum 200 milljónir króna sem varið verður til byggingar nýrrar æfingaaðstöðu fyrir körfuboltalið skólans. Anthony varð háskólameistari með liðinu árið 2003 á sínu eina ári í háskóla áður en hann gaf kost á sér í NBA deildina. Körfubolti 8.11.2006 16:55
Besta byrjun í sögu Hornets New Orleans Hornets vann í nótt sinn fjórða leik í röð í upphafi leiktíðar í NBA og er þetta besta byrjun í sögu félagsins. Liðið skellti Golden State 97-93 á heimavelli í Oklahoma City þar sem Chris Paul skoraði 22 stig og gaf 11 stoðsendingar fyrir New Orleans en Baron Davis skoraði 22 stig fyrir Golden State. Körfubolti 8.11.2006 14:57
Indiana - Philadelphia í beinni Leikur Indiana Pacers og Philadelphia 76ers verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Digital Ísland á miðnætti í kvöld. Leikurinn er ekki síst merkilegur fyrir þær sakir að Philadelphia er eitt þriggja liða í NBA sem enn hafa ekki tapað leik og hefur þessi byrjun Philadelphia komið nokkuð á óvart. Körfubolti 7.11.2006 19:01
Dallas enn án sigurs Lið Dallas Mavericks tapaði í nótt sínum þriðja leik í röð á tímabilinu þegar liðið fékk fyrrum þjálfara sinn Don Nelson og lærisveina hans í Golden State í heimsókn. Utah Jazz skellti Detroit og hefur unnið fjóra fyrstu leiki sína. Körfubolti 7.11.2006 14:35
Fyrsta tap Lakers LA Lakers tapaði sínum fyrsta leik í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið beið lægri hlut gegn Seattle. Ófarir meistaranna í Miami halda áfram og í nótt tapaði liðið gegn Philadelphia. Körfubolti 6.11.2006 10:57
Arenas fór á kostum Gilbert Arenas hjá Washington var maður næturinnar í NBA-körfuboltanum en hann skoraði 44 stig í sigurleik liðs síns gegn Boston, 124-117. Þá fóru leikmenn Houston á kostum gegn Dallas á heimavelli sínum og unnu 107-76 sigur. Yao Ming skoraði 36 stig. Körfubolti 5.11.2006 10:51