Hótuðu að birta myndskeið af aftökunni á Internetinu
Mennirnir sem grunaðir eru um að hafa annað hvort myrt eða rænt hinni norsku Anne-Elisabeth Hagen í október í fyrra, hótuðu að birta myndskeið af aftökunni á Internetinu. Þetta er í fyrsta sinn sem greint er frá innihaldi hótunarbréfs sem mannræningjarnir skildu eftir fyrir eiginmann hennar.