Innlent

Út­svars­aukningin að­eins hugsuð til tveggja ára

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Frá Selfossi, sem er einmitt í Árborg.
Frá Selfossi, sem er einmitt í Árborg. Vísir/Vilhelm

Sveitarfélagið Árborg vekur athygli íbúa sinna á því að álag var sett á útsvar í upphafi þessa árs. Íbúar eru hvattir til að hafa þetta í huga þegar þeir skipuleggja fjármál sín næsta árið. Ítrekað er að útsvarsaukningin er „aðeins hugsuð til að hámarki tveggja ára“.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef sveitarfélagsins, þar sem athygli er vakin á álagningunni. 

„Þetta þýðir að tekjur sveitarfélagsins munu aukast á þessu ári, en áhrifin á skattgreiðendur koma fram í uppgjöri á næsta ári, sumarið 2025.“

Álögurnar verði sýnilegar við uppgjör opinberra gjalda ársins 2024, þar sem íbúar muni sjá hækkun á útsvari í niðurstöðu skattframtals. 

Vilja styrkja fjárhaginn tímabundið

„Sveitarfélagið er meðvitað um að þetta aukna álag getur verið íþyngjandi fyrir íbúa, sérstaklega í ljósi þess að margir eru að glíma við aukinn kostnað á ýmsum sviðum. Það er því mikilvægt að íbúar hafi þessar breytingar í huga þegar þeir skipuleggja fjármál sín næsta árið,“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að álagningin sé í samræmi við upplýsingar sem þegar hafi komið fram um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2024, en hún var kynnt í lok síðasta árs. Þar hafi komið fram að nauðsynlegt væri að grípa til aðgerða eins og álagningarinnar, til þess að tryggja rekstrarhæfi sveitarfélagsins og viðhalda nauðsynlegri þjónustu. 

„Sveitarfélagið vill þó taka fram að þessi aukning á útsvari er aðeins hugsuð til að hámarki tveggja ára og er ekki ætlað að verða varanleg. Markmiðið er að styrkja fjárhag sveitarfélagsins tímabundið, á meðan unnið er að öðrum langtímalausnum til að mæta fjárhagslegum áskorunum.“

Íbúar eru þá hvattir til að kynna sér breytingarnar og vera meðvitaðir um að þær komi fram í framtíðarskattgreiðslum, sumarið 2025. Þá er bent á töfluna sem sjá má hér að neðan, sem sýnir áætlaða viðbótarálagningu miðað við mismunandi heildartekjur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×