Hélt upp á landsliðsvalið með marki Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. maí 2024 13:58 Emilía Kiær Ásgeirsdóttir hefur skorað grimmt á tímabilinu. getty/Nikola Krstic Emilía Kiær Ásgeirsdóttir hélt upp á það að vera valin í íslenska A-landsliðið í fótbolta með því að skora í stórsigri Nordsjælland á Næstved, 2-10, í undanúrslitum dönsku bikarkeppninnar í dag.
Emilía er einn þriggja nýliða sem voru valdir í íslenska landsliðið fyrir leikina gegn Austurríki í undankeppni EM 2025. Hinir eru Katla Tryggvadóttir og Kristín Dís Árnadóttir. Hin nítján ára Emilía á íslenskan föður en danska móður. Hún hefur leikið fyrir yngri landslið Danmerkur en hefur nú verið valin í íslenska A-landsliðið. Emilía og stöllur hennar í Nordsjælland voru í góðri stöðu fyrir seinni leikinn gegn Næstved í dag enda unnu þær þann fyrri, 0-7. Nordsjælland var í álíka litlum vandræðum með Næstved í dag og vann annan stórsigur, 2-10. Emilía skoraði annað mark gestanna á 50. mínútu en hún jafnaði þá í 2-2. Emilía er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni með tíu mörk í sextán leikjum. Nordsjælland er með tveggja stiga forskot á toppi hennar. Í bikarúrslitaleiknum mæta Emilía og stöllur hennar Bröndby sem Kristín Dís og Hafrún Rakel Halldórsdóttir leika með. Bröndby vann AGF í gær, 3-1, og einvígið, 4-3 samanlagt.
Danski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Fleiri fréttir Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Bellingham kallaði dómarann skíthæl Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Sjá meira